30 May 2006

Í Ingólfsfirði

Verksmiðja Ingólfsfjörður2

22 May 2006

Nýjar vörur daglega
Damaskus, Sýrlandi

08feb20

Foto_33

20 May 2006

F1000035

14 May 2006

Jahá. Og hvar hafa svo dagar lífs míns lit sín... nei ég meina hvað hefur svo drifið á daga mína undanfarið? Jú þeir eru litríkir sem aldrei fyrr, nú þegar ég er orðin húsmóðir og húsráðandi í Vesturbænum. Ég hafði orð á því um daginn að einn af kostunum við að búa ein væri að þá gæti ég tekið upp titilinn "allsráðandi" innan veggja heimilisins, í stað þess að taka sérhæfari titla s.s. uppvaskari, bókhaldari, ræstitæknir o.s.fr. - var mér þá snarlega bent á að maður þyrfti nú ekkert að vera einhleypur til þess.. og mun ég hafa það á bak við eyrað við makaval í framtíðinni.
-----
Til að gera langa sögu stutta þá fór ég frá Spáni til Bratislava í Slóvakíu í lok febrúar, þar var kalt og þar fór ég á alveg frábært listasafn, byggingin í svona Sovét-chic stíl og ég kolféll fyrir einni sýningunni, sem hét Slovak Myth. Þessi Balkan-sveitamelankólía finnst mér svo sjarmerandi.


Frá Bratislava til Búdapest, sem ég var mjög hrifin af, margt að sjá og gera og þar fann ég mér skemmtilegan samferðamann í nokkra daga, sem kom til af því að hann er með enn verra áttaskyn en ég og er algerlega fatlaður á öll tungumál nema ensku. Það hlakkaði í þeim ágæta manni þegar ég vippaði mér inn í apótek og hugðist kaupa mér hálstöflur (vegna kvefsins eftir kuldann í Slóvakíu), þar sem ungverska er nú ekkert árennilegt tungumál fyrir svona aula eins og mig. Mikið varð ég því glöð þegar ég gat bent upp í hillu og sagt kurteislega "Strepsils" og þakkað svo pent fyrir mig á ungversku. Að auki fékk ég svo strepsilsið í forláta pjáturdós eins og brúkuð var sem skrúfuhirzlu í verkfæraskúffu föður míns fyrir 20+ árum (þar sem karl faðir minn er bóndi á hann samt ekki bara verkfæraskúffu heldur líka verkfæra"skáp" sem er álíka stór að rúmmáli og forstofan mín - nú og svo verkfærahús, sem er einmitt álíka stórt og íbúðin mín, en meira að henni seinna). Það er skemmst frá því að segja að dósin kom með mér heim því mér fannst hún miklu flottari en einhverjir minjagripir-fyrir-ferðamenn sem ég sá á markaðnum. Auðvitað fór ég á tónleika í Búdapest, en "Dóná svo blá" varð ég nú bara að raula í huganum.


Eftir að hafa notið hinnar töfrandi borgar Búdapest í of fáa daga fór ég til Vínar, sem mér fannst nú frekar grá og lítið spennandi eftir dagana á undan, en það hefur nú kannski eitthvað haft að gera með gráa himininn. Enda fannst mér það flottasta í Vínarborg verkin hans Hundertwasser, sem eru litrík og lífleg og laus við íþyngjandi fyrrverandi-keisaraveldis-drunga. Ég tók dag í að skoða fjölbýlishús sem hann hannaði og Kunsthaus Wien, sem hann hannaði og þar eru til sýningar verk eftir hann. Það gladdi mitt frímerkja- og fánanördahjarta að sjá að hann hefði nú líka dundað sér við að hanna svoleiðis, þessum degi var nú aldeilis vel varið.

Eftir Vín hélt ég til Sviss. Á lestarstöðinni í Zurich urðu fagnaðarfundir þegar Sylvia vinkona mín tók á móti mér, en við vorum að vinna fyrir sömu samtök í Kenya fyrir nokkrum árum og höfum ekki sést síðan í London 2001, þegar ég var á leið til Indlands en hún á leið í indversk-svissneskt hjónaband. Það stendur sem betur fer enn yfir og ég hafði það afar gott hjá þeim hjónakornunum í nokkra daga. Í mínum huga hefur Sviss alltaf haft á sér einhvern efficient-but-boring stimpill, þó ég þekki fullt af skemmtilegu fólki þaðan, svo það var afar gleðilegt þegar ég gat afsannað þá kreddu fyrir sjálfri mér. Ég fór víða um í Sviss, enda keypti ég mér passa í lestirnar sem kostaði mig nánast hvítuna úr augunum og ég vildi nota hann vel. Ég fann m.a. þessi fínu söfn í Luzern, sem var gaman að koma á því á Spáni hafði ég aðeins verið að stúdera Picasso og verkin hans.


Aðrir fagnaðarfundir urðu í Fribourg þegar ég hitti vin minn og fyrrverandi samstarfsmann Sébastien sem ofan á allt á svona glimrandi skemmtilega vini. Ég dvaldi í Bulle í kommúnunni hjá Séb og félögum í nokkra daga, skánaði ekkert í frönsku og borðaði fullt af crème double og marengs og sá fyrstu vorblómin koma undan snjó í suðurhlíð fjallsins afa hennar Heiðu.


Stærsti plúsinn við Sviss: lestarkerfið. Stærsti mínusinn: tja, ég hreinlega veit það ekki. Hvað það eru margar kaloríur í fondúi?


Síðan var gert vikustopp á fundi í Luxemborg, en þar með var ég komin aftur í vinnuna, fínt að fá svona aðlögunartímabil, eins og börnin á leikskólanum.

Núna er ég svo búin að hreiðra um mig í Vesturbænum. Illkvittnar tungur geta kallað íbúðina mína bílskúr, nú eða bakhús, en á útihurðinni er lítið (í stíl við íbúðina) látúnsskilti þar sem stendur Grenimelur 21 - annexía. Bakhús smakhús! Þetta er minnsta og notalegasta herragarðssetur í Vesturbænum, með príma staðsetningu milli Bókhlöðunnar og Vesturbæjarlaugarinnar, með sólpall í suður og allt. Ég sá þegar ég tætti búslóðina upp úr kössum sem voru í geymslu í fleirum en einum landshluta að heldur hefur aukist við bókaeignina á síðustu árum en í meyjarskemmunni er einfaldlega ekki pláss fyrir fleiri bókahillur en nú er. Og svo átti ég fullt af dóti sem ég barasta þarf ekkert á að halda - til dæmis þarf kona einsömul undir þrítugu (já, í nokkra mánuði í viðbót!) ekki á sjö pottum að halda. Allavega ekki ef þeir eru hvort eð er bara í tveimur mismunandi stærðum; einhleyp og einhleyp-og-svöng. Góði Hirðirinn og fleiri fengu góðs að njóta þegar var búið að flokka og skila. Og nú vinn ég bara eins og venjuleg manneskja, ekki í verð-að-vinna-fyrir-næsta-ferðalagi akkorði, þar sem það verður ekki lagt í langa útlegð næsta vetur, en sjálsagt næ ég að íkorna saman fyrir einhverjum vikum.

Þannig var nú það. Og þar sem ég er búin að tappa af líða næstu mánuðir sjálfsagt án færslna, nema kannski myndbirtingum eins og ég hef stundað undanfarið, það er svo miklu fljótlegra en að skrifa. Og nú auglýsi ég bara eftir skemmtilegu fólki í heimsókn i kotið. Dettur ykkur einhver í hug?
Myndarlegt brim
Reynisfjara, Mýrdal

fjara1

13 May 2006

Meira úr Bratislavský hrad
Bratislava, Slovakia

F1020013

F1020017

F1020025

9 May 2006

In Bratislavský hrad castle
Bratislava, Slovakia

F1020019

8 May 2006

Úr ösinni á markaðnum í friðinn í moskunni
Damaskus, Sýrlandi

Foto_02