28 January 2008
19 January 2008
Gleði gleði!
Þessi mikla hamingja er aðallega tilkomin vegna þess að nú er ég búin að fá niðurstöður úr öllum kúrsunum mínum frá haustönninni. Meðaleinkunnin mín fyrir þessa 5 kúrsa er 8,6 og
ég er ferlega montin og glöð. Þetta þýðir líka að bráðum fæ ég útgreidd námslán, og eftir útreikninga dagsins sé ég að ég á 80.000 í afgang (sem ég hafði reyndar lagt upp með, það er ekki eins og aukapeningur dúkki upp bara sisvona) sem fer beint í ferðasjóðinn minn, sem vex smám saman og þó hann sé ekki digur þá hann að duga fyrir vorferðinni sem ég er að plana.
Í kvöld er ég svo að fara út að borða með stelpum úr skólanum, á morgun ætla ég að fara á bókasafnið og eiga rólegan dag og dingla mér, á þriðjudaginn fer ég í bíó, á fimmtudaginn í leshring, á föstudaginn til Akureyrar... ég má þakka fyrir að koma vinnu, skóla og rækt að fyrir sósjallífinu.
Janúar er bara ekkert leiðinlegur mánuður, snjórinn fer ekki einu sinni í taugarnar á mér og almennt hef ég heiminn í hendi mér þessa dagana.

13 January 2008
Bíóferðir síðasta árs
Ég man annað slagið eftir bókum sem ég las á síðasta ári en gleymdi að setja á listann í færslunni hér á undan. Ég gleymdi m.a. Karítas án titils eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur sem ég hafði lesið áður, og Þriðja táknið og Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur og Afturelding eftir Viktor Arnar Ingólfsson. En nóg um bækur í bili.
Eftirtaldar myndir sá ég í bíó á síðasta ári. Mér þykir afar gaman að fara í bíó en er ekki nógu dugleg við það, nema þegar ég er á Spáni. Þar bæði kostar minna að fara í bíó og ég tel mér trú um að það sé bara hollt fyrir mig að fara í bíó því kannski muni einhver orð eða orðasambönd síast inn í kolinn, en þar eru allar kvikmyndir sýndar með spænsku tali. Ég hugsa að listinn sé ekki jafn gloppóttur og bókalistinn, en þó gæti nú ein eða tvær myndir hafa gleymst. Þetta eru 27 myndir og því lítur út fyrir að ég fari í bíó ca. aðra hverja viku, en sannleikurinn er sá að ég fer oft þegar kvikmyndahátíðir standa yfir en sjaldan þess utan.
La vie en rose
Heima
Veðramót
Hairspray
Embla
Cocaine cowboys
Japan Japan
Iraq in fragments
Metamorphosis
The Bridge
Helvetica
El Ejido
Campillo, sí, quiero
Lives of others
Astrópía
Harry Potter and the order of the Phoenix
Börn
Venus
The last king of Scotland
Little miss sunshine
Stranger than fiction
El laberinto del fauno (Pan's labyrinth)
Babel
Diamantes de sangre (Blood diamonds)
Volver
The Holiday
Köld slóð

7 January 2008
Lestur síðasta árs
Ég strengi allajafna ekki áramótaheit, því mér þykir svo erfitt að standa ekki við eitthvað sem ég segi eða ákveð. Sennilega er þetta af sama meiði komið og tapsærindin mín, en ég er alveg hrikalega tapsár. Sem er frekar slæmt og ég ætti örugglega að vinna í. Seinna.
Um síðustu áramót ákvað ég að reyna að skrifa niður allt sem ég les, en ég rek mig stundum á það að byrja á bók sem ég hef lesið áður. Ég á til þess forláta minnisbók sem ég skrifa í titla og dagsetninguna þegar ég klára bókina. Það gekk samt ekki alveg eftir, stundum skrifaði ég niður og stundum ekki, og stundum vantar heilu vikurnar inn í gloppóttan listann í bókinni. Eftir að hafa farið yfir bókasafnslánin á árinu á Gegni, farið í gegnum minnisbókina góðu og staflann við hliðina á rúminu sé ég að árið 2007 hefur verið ár endurlesturs, en ég var afar dugleg að lesa bækur sem ég hafði lesið aftur og sumar oft.
Hér er stærsti hluti bókanna sem ég las á síðasta ári, sirka í tímaröð, þó sennilega hafi ekki allar ratað á listann. Rétt eins og í sjónvarpinu þýðir (e) endurtekið efni. Titlarnir eru á því tungumáli sem ég las bókina, en ég les aðallega á íslensku og ensku. Skólabækur eru ekki á listanum og svo hef ég flett í fullt af fræðibókum án þess að hafa klárað þær og þær ná ekki á listann.
Skáldsögur
Á meðan hann horfir á þig ertu María mey – Guðrún Eva Mínervudóttir (e)
Hjartahreinir ævidagar Úlfs – Ösp Viggósdóttir
Elling – fugladansinn – Ingvar Arnbjørnsen
Yosoy – Guðrún Eva Mínervudóttir
Fyrirlestur um hamingjuna – Guðrún Eva Mínervudóttir
Náðarkraftur – Guðmundur Andri Thorsson
Viltu vinna milljarð? – Vikas Swarup
Albúm – Guðrún Eva Mínervudóttir (e)
Kular af degi – Kristín Marja Baldursdóttir (e)
Liar Birds – Lucy Fitzgerald
Bitter sweets – Roopa Farooki
Skuggarnir lengjast í rökkrinu – Henning Mankell (e)
Drengurinn sem svaf með snjó í rúminu – Henning Mankell (e)
Hundurinn sem hljóp upp undir stjörnu – Henning Mankell (e)
Ofurnæfur – Erlend Loe (e)
The infinitiy of loss – Anita Desai
Hálfbróðirinn – Lars Saabye Cristensen
Tuesdays with Morrie – Mitch Albom
Húsið með blindu glersvölunum – Herbjørg Wassmo (e)
Þögla herbergið – Herbjørg Wassmo (e)
Dreyrahiminn – Herbjørg Wassmo (e)
Strengir – Ragna Sigurðardóttir
Pobby og Dingan – Ben Rice
Egils saga Skallagrímssonar
Gísla saga Súrssonar (e)
Winter in Madrid – C.J. Sansom
Tryggðarpantur – Auður Jónsdóttir
Frá Gósenlandinu – Kirsten Hammann
Between the sky and the earth – Jamie Zeppa (e)
Hermann – Lars Saabye Cristensen (e)
Nafnabókin – Amélie Nothomb (e)
Undrun og skjálfti – Amélie Nothomb
Snákar og eyrnalokkar – Hitomi Kanehara
Shanghai baby – Wei Hui (e)
Undantekningin – Christian Jungersen
Áform – Michel Houellebecq (e)
Englar alheimsins – Einar Már Guðmundsson (e)
Ég um mig fá mér til mín – Pétur Gunnarsson (e)
Hversdagshöllin – Pétur Gunnarsson
Electricity – Ray Robinson
Eldhús – Banana Yoshimoto (e)
Thousand splendid suns – Khaled Hosseini
Hvítt á svörtu – Ruben Gallego
Saffraneldhúsið – Yasmin Crowther
La reina del sur – Arturo Pérez-Reverte (e)
El lápiz del carpintero – Manuel Rivas
Harry Potter and the halfblood prince – J. K. Rowling (e)
Harry Potter and the deathly Hallows – J. K. Rowling
The little prince – Antoine de Saint-Exupéry (e)
Spanish lessons – Derek Lambert (e)
Minningar um döpru hórurnar mínar – Gabriel García Márquez
Berlínaraspirnar – Anne B. Ragde
Sólskinshestur – Steinunn Sigurðardóttir
Gyllti áttavitinn – Philip Pullman
Lúmski hnífurinn – Philip Pullman
Skuggasjónaukinn – Philip Pullman
Spanish steps: travels with my donkey – Tom Moore
Mirage – Bandula Chandraratna (e)
Eye for an eye – Bandula Chandraratna (e)
Black Swan Green – David Mitchell
Matilda – Roald Dahl
Boyhood – J. M. Coetzee
Youth – J. M. coetzee
Vansæmd – J. M. Coetzee (e)
Speech of angels – Sharon Maas (e)
Óreiða á striga – Kristín Marja Baldursdóttir
Aska – Yrsa Sigurðardóttir
Þar sem vegurinn endar – Hrafn Jökulsson
Ástin í lífi mínu – Carla Guelfenbein
Smásagnasöfn
Aldingarðurinn – Ólafur Jóhann Ólafsson
Steintré – Gyrðir Elíasson
Heykvísl og gúmmískór – Gyrðir Elíasson (e)
Sögur og ljóð – Ásta Sigurðardóttir (e)
Túlkur tregans – Jhumpa Lahiri (e)
¿Que me quieres, amor? – Manuel Rivas (e)
Ljóðabækur
Á stöku stað með einnota myndavél – Árni Ibsen
Leitin að Fjalla-Eyvindi – Halla Gunnarsdóttir
Blálogaland – Sigurbjörg Þrastardóttir
Græna skyggnishúfan – Sigurlaugur Elíasson (e)
Skjólsteinn: ferðaljóð – Sigurlaugur Elíasson (e)
Guðlausir menn: Hugleiðingar um jökulvatn og ást – Ingunn Snædal (e)
Önnur verk
The new Turkey: The Quiet Revolution on the Edge of Europe – Chris Morris
North American Icelandic – Birna Arnbjörnsdóttir
Grímnir 1
Orð og tunga
What in the word – Charles Harrington Elster
Orðasmíð – Þorsteinn Gylfason
Tungumál veraldar – Baldur Ragnarsson
Mál og málsaga – Baldur Ragnarsson

1-0 fyrir húsráðanda
Fyrsta barátta ársins hefur verið háð. Hún var hatrömm og langvinn og fór fram milli undirritaðrar og klakans í frystihólfinu í ísskápnum. Húsráðandinn í Vesturbænum hafði sigur, með heitt vatn, stóra búrhnífinn og tímann að vopni.
Fyrr um kvöldið hafði ég líka sigrast á mínum innri letipúka og er nú búin að taka niður jólaskrautið og þrífa íbúðina. Mikið verður gott að fara að sofa með góða samvisku og Þrifilm í nösunum.
---
Það gerist samt fleira í mínu lífi en átök innan veggja heimilisins (athugið að ég bý ein og þarf því ekki að slást við fleiri en sjálfa mig). Í gærkvöldi fór ég á brennu á Álftanesi, sem mér fannst samt ekki alveg alvöru því þar voru engir mennskir í álfabúningum og engin nýárslög sungin. Ég fékk samt að leika mér með stjörnuljós, eins og sést hér að neðan. Með góðum vilja er hægt að sjá að ég er að baksa við að skrifa nafnið mitt, afturábak, í roki, á 3 sekúndum því það var lokunarhraðinn.
Á laugardag fór ég ásamt vinum mínum í könnunarleiðangur um Reykjanes, þar sem við nutum góða veðursins. Ég tók engar myndir og því línka ég bara á myndir vina minna, hér og hér.

Subscribe to:
Posts (Atom)