28 January 2008

Orð dagsins eru í boði Melabúðarinnar, þar sem er aldrei leiðinlegt að versla.

Loðber = kiwi
Sólaldin = papaya

Svo komst ég að því nýlega að jackfruit, sem mér þykir ofsalega gott og er líka svo skemmtilegt til átu, á sér íslenskt nafn: saðningaraldin. Hefði nú seint giskað á það.

5 comments:

Anonymous said...

Er ekki Melabúðin líka farin að selja mat fyrir einhleypa? :)
Birna

Ásta Kristín said...

Ha? Hvurnig þá? Allavega get ég bara keypt í bakka hæfilega skammta fyrir mig, áttu við eitthvað annað? Er eitthvað að gerast í hverfisbúðinni sem ég veit ekki um?

Anonymous said...

Það var í útvarpinu í morgun að melabúðin seldi mat í umbúðum sem hæfa betur einhleypa, já einhverja minni skammtastærðir og einhleypir kæmu mikið þarna til að versla já og hösla í leiðinni!!! Allt að gerast í Melabúðinni greinilega :)
Birna

Ásta Kristín said...

Ó, svoleiðis. Ég hef nú ekkert tekið eftir miklu hössli í Melabúðinni, kannski af því að ég kem venjulega við þar á kvöldin, eftir ræktina, og vil bara mat minn og engar refjar, ógreidd eftir sturtuna og stórglæsileg eftir því. Enda held ég bara áfram að vera einhleyp. Ég get þá alltaf fengið smærri skammta - Í Melabúðinni.

Linda Björk said...

damn að ég búi svona langt frá melabúðinni.

Ekki það að ég vilji hössla heldur frekar þetta skammta fyrir einhleypinga :) er alltaf að henda mat nefnilega. Svoldið óhentugt og kostnaðarsamt.