27 February 2008

Superstratum og lolkattneska

Hef verið að lesa um substratum og superstratum, og skoðaði m.a. dæmi um frönsku/ensku. Hér er einmitt dæmi um frönsku sem superstratum á ensku, í lolkattneskri mállýsku :)

Fyrir ólæsa á lolkattnesku og frönsku: I have a certain je ne sais quoi.
F**k grapefruit

Ég hef ekki bara gaman að orðum, heldur líka allskyns tölfræði, töflum og framsetningu. Hér getum við t.d. sé af hverju greipaldin er ekki fyrirhafnarinnar virði.

Meira er að finna á xkcd.com sem er uppfærð þrisvar í viku.
Ég hef mjög svo gaman að orðum og hef gaman af að heyra nýyrði, hvort sem er á íslensku, ensku eða spænsku. Í gær heyrði ég skemmtilegt orð sem ég hef ekki heyrt áður, sögnina bagonize, sem lýsir örvæntingarfullri biðinni eftir töskunni við farangursbeltið á flugvellinum.
---
Ég hef verið, og er enn, kvefuð, sem er ekkert skemmtilegt. Fyrir vikið er ég búin að hanga heima hjá mér og hanga á netinu, þar sem mér finnst ég ekki hafa orku til að takast á við þunglyndislegar 19. aldar skáldsögur eða málfræði (sem er samt frekar léleg afsökun. Ef ég get setið í sófanum og lesið eitt þá ætti ég alveg eins að geta lesið annað).

Eitt af því sem ég hef verið að skoða eru málvísindi lolkatta sem er voða gaman af því
a) málvísindi eru skemmtileg
b) kisur eru sætar
c) í lolkattnesku fær sköpunargáfan útrás en getur samt stuðst við reglur

Það er m.a.s. verið að þýða biblíuna á lolkattnesku. Hér eru helstu reglur og hér er orðabók. Svo er fullt af greinum á netinu um efnið, en þar sem þessi tunga hefur þróast mjög hratt eru flestar sem ég renndi í gegnum þegar orðnar úreltar.

Aðallega fær þetta mig samt til að brosa og það er nú ekki svo lítils virði.

20 February 2008

Merki um slæma tímastjórnun er að mæta seint á fyrirlestur um tímastjórnun.

Það var samt allt í lagi því að fyrirlesturinn byrjaði ekki alveg á réttum tíma. Enda fyrir íslendinga og haldinn af íslendingum. Við erum upp til hópa ágæt, en kannski ekki mjög sterk þegar kemur að stundvísi.

Annað merki um slæma tímastjórnun er að blogga þegar lærdómurinn bíður.

18 February 2008

Kaffikrúsir og fleira flott

Mér þykir gaman og gott að drekka bæði te og kaffi. Enn betra ef þessar guðaveigar eru bornar fram í skemmtilegri krús eða bolla. Enn skemmtilegra finnst mér ef drykkjarílát eru ósamstæð og sitt af hverju taginu, og ég læt það gjarna eftir mér annað slagið að kaupa fallega bolla, en bara einn af hverri gerð. Og loksins, eftir að hafa langað til þess í marga mánuði, keypti ég mér í kvöld bolla sem hefur verið ofarlega á óskalistanum.

Og sjá, ég boða yður mikla fegurð:


Bollinn heitir að sjálfsögðu "Storm in a teacup", því ef vel er að gáð skoppar lítið skip á öldunum og berst um í storminum. Fagur bolli OG orðaleikur! Gerist það betra?

Gripurinn fæst hjá Duffy London, en þar er að finna allskyns skemmtilega nytjahluti.

Nú þarf ég bara að bíða eftir að fá gersemina í hendur. Til að þurfa ekki að greiða gríðarhátt burðargjald ætlar vinur minn að taka á móti gripnum í London og færa mér hann í næstu ferð. Nú er bara að bíða. Ég á næga aðra bolla til að drekka úr þangað til.

9 February 2008

Þar sem ég barðist gegn vindinum og slagveðursrigningunni í gærkvöldi fannst mér ofsalega langt síðan ég flæktist eitthvað um önnur lönd, enda hef ég stoppað ótrúlega lengi heima í þetta sinn. Ég hef hinsvegar hugsað mér að gera þar breytingu á, og er að plana næstu ferð. Hún verður samt frekar stutt í tvennum skilningi; bæði ætla ég að halda mig við Evrópu, og svo verð ég bara í burtu í nokkrar vikur, svona 5-6 vikur.

En ég hlakka rosalega mikið til! Og það er svo gaman að lesa sér til og undirbúa ferðalög, reyndar er ég voða dugleg við það einmitt þegar ég á að vera að læra, en einhvern veginn man ég þá alltaf eftir einhverju sem ég ætlaði að fletta upp o.s.fr.

En hvað ætla ég að gera í fríinu? Jú, ég ætla að fara til Spánar, um leið og prófin eru búin í vor, og ganga í 4-5 vikur á norðanverðri Spáni, El Camino de Santiago frá Roncesvalles til Santiago de Compostela, og reyndar helst aðeins lengra, að Finisterre. Þetta verður örugglega frábært; ógeðslega erfitt og ofboðslega skemmtilegt. Bara ég, bakpokinn og slóðin. *Dæs*.

Ah, til 12 pm. Kannski læt ég þá sjá mig eftir lúrinn.
Sko... vissulega myndi ég vilja vera til í að vera með skrílslæti í fyrramálið, en klukkan 9?!! Ég var að koma heim núna um 4 og það er nú það minnsta að fá 8 tíma svefn!!

Skemmtið ykkur vel, árrisulu réttlætissinnar, og gangi ykkur vel. Þó ég sé ein af ykkur hyggst ég vera sofandi á þessum ókristilega tíma. Þvílíkum hæðum nær réttlætiskennd mín - 1: svefn, 2: matur, 3: annað.

4 February 2008

Ég hef upplifað það undanfarna daga að hafa ekki internet hér heima í kotinu mínu. Þessi upplifun hefur verið svipuð og þegar rafmagnið fór af þegar ég var krakki - ég var alltaf að reka mig á það að ég þyrfti netið við það sem ég ætlaði að gera, rétt eins og þegar rafmagnið fer ætlar maður að nota tímann og stinga í þvottavél eða annað sem auðvitað krefst þess að rafmagnið sé á.

Fyrsta kvöldið ákvað ég að baka, fyrst ég gat ekki notað netið - en án netsins gat ég auðvitað ekki leitað að uppskrift að því sem ég vildi gera.

Þegar ég hafði fundið uppskrift upp á gamla mátann, í matreiðslubók, ákvað ég að hlusta á útvarpið á meðan ég bakaði - en án netsins gat ég ekki fundið þættina sem ég hlusta jafnan á og varð að láta mér duga það sem var verið að senda út þá stundina.

Eftir baksturinn lét ég mér detta í hug að horfa á sjónvarpið, sem gerist afar sjaldan á þessu heimili. Þar sem blaðburðarbarnið skilur húsið mitt útundan annan hvern dag eða svo gat ég ekki athugað hvað væri á dagskránni - án netsins gat ég ekki athugað hvað væri í boði á skjánum og hætti því við það.

Ég endaði á því að lesa spænska skáldsögu sem ég þarf að lesa bráðlega fyrir skólann - og án netsins þurfti ég að fletta upp í orðabók, sem ég geri venjulega bara á netinu.

Sem betur fer er þetta komið í lag og ég hlakka til að vinna heima á morgun, við eigið eldhúsborð og með mína dásamlegu, nettengdu tölvu. Og kaffi.