9 February 2008

Þar sem ég barðist gegn vindinum og slagveðursrigningunni í gærkvöldi fannst mér ofsalega langt síðan ég flæktist eitthvað um önnur lönd, enda hef ég stoppað ótrúlega lengi heima í þetta sinn. Ég hef hinsvegar hugsað mér að gera þar breytingu á, og er að plana næstu ferð. Hún verður samt frekar stutt í tvennum skilningi; bæði ætla ég að halda mig við Evrópu, og svo verð ég bara í burtu í nokkrar vikur, svona 5-6 vikur.

En ég hlakka rosalega mikið til! Og það er svo gaman að lesa sér til og undirbúa ferðalög, reyndar er ég voða dugleg við það einmitt þegar ég á að vera að læra, en einhvern veginn man ég þá alltaf eftir einhverju sem ég ætlaði að fletta upp o.s.fr.

En hvað ætla ég að gera í fríinu? Jú, ég ætla að fara til Spánar, um leið og prófin eru búin í vor, og ganga í 4-5 vikur á norðanverðri Spáni, El Camino de Santiago frá Roncesvalles til Santiago de Compostela, og reyndar helst aðeins lengra, að Finisterre. Þetta verður örugglega frábært; ógeðslega erfitt og ofboðslega skemmtilegt. Bara ég, bakpokinn og slóðin. *Dæs*.

3 comments:

Anonymous said...

Þetta verður mega gaman hjá þér. Mitt sumarfrí verður meira svona...ég, sangría, sól og sandur :)
Ása Marin

Anonymous said...

líst vel á þetta hja þér. ekta þú.
mitt sumarfrí verður annars vegar familían í sólinni á tenerife, sundlaugargarðar og skemmtileg heit. og hinsvegar letilíf í sælunni heima á borgó.
kveðja úr keflavíkinni
heiða skvísí

Ásta Kristín said...

Ég á nú líka vonandi eftir að sjá fullt af sól, og svo mun ég ganga gengum hið rómaða Rioja hérað, þar sem rauðvínið á sér póstnúmer.... og get borðað góðan kvöldmat með góðri samvisku á hverju kvöldi og skolað honum niður með rauðvíni. Oh, ég hlakka svo til!