22 May 2007

Reynisfjara við Vík í Mýrdal



11 May 2007

Á Djúpalónssandi

9 May 2007

Nýr, eða upprisinn, bloggari

Nú hefur vinur minn, hann Kristján Ketill, hafið blogg að nýju. Þar sem hann lofaði að vera duglegur að blogga um að gera að skapa smá pressu... sem mér er ljúft að gera, þar sem ég gef engin loforð um eigið blogg. Síðuna hans er að finna hér: (já , hann er einn af þessum moggabloggurum).

F1000023++

4 May 2007

Ammmæli

Nýlega varð ég þrítug og það var nú bara alveg syngjandi skemmtilegt. Ég hef ekki haldið upp á afmælið mitt í nokkur ár, en á örugglega eftir að gera það á hverju ári hér eftir. Þar sem mér þykir mjög gaman að hitta fólk, en helst ekki marga í einu, skipti ég afmælispartýinu í þrennt; á afmælisdaginn kom fjölskyldan í kaffi og kökur og spjall, nokkrum dögum síðar komu nokkrir vinir í heimsókn og þriðji í afmæli var menningarferð í Borgarnes með kærum vini. Þar sáum við sýninguna Mr. Skallagrímsson, fengum okkur kaffi og fórum svo á jazztónleika. Alveg dandalans fínt. Kærar þakkir fyrir heimsóknirnar og allar kveðjurnar sem ég hef fengið.

Og svo er bara alveg að koma sumar. Birtan á kvöldin er svo falleg og ég hef svo mikla orku að ég veit varla hvað ég á af mér að gera (ég veit reyndar alveg að ég ætti að nota hana til að fara í líkamsrækt, en hefur tekist hingað til að hunsa þá vitneskju).

Á morgun ætla ég svo aftur í leikhús, til að sjá Leg í Þjóðleikhúsinu. Á næstunni væri svo sniðugt að fara út að ganga með myndavélina, mig grunar að henni þyki hún svolítið afskipt, þar sem hún húkir uppi í forstofuskáp, alein, og fær enga hreyfingu.

Með fylgja svo myndir frá Gróttu frá síðasta sumri.