25 September 2006

Í tilefni haustkomu og sölnaðra blóma
-og fyrir alla hina blómanördana

Það hefur mikið verið að gera í sósjallífinu undanfarið og myndavélin hefur ekki verið tekin uppúr töskunni í óratíma, svo til að koma í veg fyrir steingervingu þessarar síðu hendi ég bara inn gömlum myndum. Annars er þetta gullfallega haust afar vel til myndunar fallið, þannig að efst á tú-dú listanum er að finna upp leið til að teygja á sólarhringnum.

Þetta er erfitt líf; nú eru nýyfirstaðin kvikmynda- og vísindamaraþon hjá mér og önnur kvikmyndahátíð er að hefjast, svo þarf nú að koma skóla og vinnu fyrir einhversstaðar á dagskránni líka.
















10 September 2006

Ígulker

7 September 2006

F1000023+

4 September 2006

Ásta Kristín úti að leika með nýja dótið sitt.

F1010017