27 December 2007

Nú er gott að vera inni að lesa... svona lítur útihurðin út í dag. Ég passa að vera réttu megin við hana.

2

25 December 2007






























Svona var nú Borgarfjörður fagur á aðfangadag.

22 December 2007

Búin að pakka, búin að vaska upp, búin að ná mér í bækur fyrir fríið, og farin heim. Svo lengi sem fluginu verður ekki frestað aftur.

Gleðileg jól!

Picture 1

Og hér er að finna fleiri gömul sovétjólakort, þar sem börn í geimfarabúningum og hin ýmsu loftför virðast aðalþemað.

21 December 2007

Dagurinn í dag er frábær fyrir þær sakir að
a) ég var að klára seinasta prófið og það gekk bara syngjandi vel í þeim öllum
b) héðan í frá fer daginn að lengja

Á morgun fer ég svo heim í jólafrí, er búin að pakka inn jólagjöfunum, senda kortin og allar græjur, á bara eftir að fara á bókasafnið til að birgja mig upp fyrir fríið.

Fyrir þá sem hafa áhuga á ljósmyndun, eða áhuga á heiminum okkar almennt, vil ég benda á mynd ársins hjá Unicef. Og þeir sem vilja hjálpa til að gera heiminn örlítið betri geta gefið svona fínt jólaskraut og stutt í leiðinni gott málefni. Eða bara keypt svona handa sjálfum sér, eins og ég ætla að gera.

16 December 2007

Múltítakskíng (S)
Að hlusta á jólatónleika í útvarpinu, horfa á kvikmynd í sjónvarpinu, skrifa á jólakort, borða kvöldmat, tala í símann, gera minnislista í huganum, og blogga.

Allt í einu. Hvernig ætli við værum ef við myndum nota fleiri prósent af heilanum?

14 December 2007

Það er auðvelt að gleðja mig

og það gerir Rás 1 á hverjum degi. Fyrir íslensku- og almenna tungumálanörda mæli ég með þættinum Vítt og breitt frá deginum í dag, en hlutinn Íslenskt mál var aldeilis skemmtilegur. Og svo færir Rás 1 okkur maraþonjólatónleika á sunnudaginn, heim í stofu (eða eldhús, eða hvar sem við höfum viðtækin eða tölvurnar). Gert verður samt hlé um þrjúleitið til að flytja útvarpsleikhúsið, sem er eins gott, því það er svolítið langt að bíða í viku eftir næsta þætti.

Ég er að reyna að sanfæra mig um að ég geti sko alveg hlustað á útvarpið, drukkið kaffi, borðað mandarínur og einbeitt mér að því að læra undir próf í bókmenntafræði, á spænsku, allt í einu. Hvað er íslenska orðið yfir multi-tasking?

11 December 2007

Topp tíu vinsældarlisti próflestardaganna:

1. Grýlukanilkaffi frá Kaffitári.
2. Boxer platan með The National, mest þó Fake Empire.
Sú plata er reyndar á vinsældarlista haustsins, ekki bara þessarra daga.
3. Mandarínur.
4. Dagsbirta. Mætti samt að ósekju vera meira af henni.
5. Malt og appelsín, samt ekki fyrirfram blandað í dós, maður
verður nú að nostra pínulítið við sérviskuna.
6. Stollen brauð, marsípanfyllt.
7. Síðdegistímar í ræktinni. Sjá lið 5 og 6.
8. Piparmyntute.
9. La reina del sur eftir Arturo Perez Reverte, til að hvíla sig á skólabókunum.
10. Jólabíómyndatilhlökkun. Ég hlakka svo til að sjá Gyllta áttavitann – og það er svo gaman að hafa eitthvað til að hlakka til. Svo er fullt af spennandi myndum væntanlegar á vegum Græna ljóssins. Jei!

10 December 2007

Awww....

Fórum á Broadway um helgina með vinnunni, voða gaman og allir sætir og hamingjusamir.

IMG_5096
Uppáhaldsafþreyingin

um þessar mundir er útvarpsleikhúsið á sunnudögum. Þar eru verið að endurflytja Sitji guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur, og er hin besta skemmtun. Abba hin er líka svo sæt í útvarpinu, enn sætari en í bókunum. Svo fer líka svo vel saman að hlusta á útvarpsleikhúsið og púsla, og borða mandarínur; ekta desembersunnudagsaktivítet. Enn betra er samt þegar er elduð handa mér dýrleg máltíð á meðan, og mér er sagt að slappa bara af og púsla, ég geti bara eldað seinna. Dæs. Ég á svo notalega vini.

Ég vona að Rás 1 verði enn með svona góða dagskrá þegar ég verð gömul og hef allan heimsins tíma til að lesa og hlusta á útvarpið.

4 December 2007

Uppskrift að góðu kvöldi

- góð samviska eftir verk dagsins
- lítið matarboð með góðum vinum í hreinni íbúð
(eigin íbúð, annars skiptir það þig engu hvort hún er hrein eða ekki)
- góður matur
- góður eftirmatur með jólatwisti
- að nenna að vaska upp þegar gestirnir eru farnir í stað þess að stafla í
vaskinn og geyma uppvaskið þar til daginn eftir
- að hlusta á jólalög á meðan á uppvaski stendur
- að kúra sig svo í sófann og lesa góða bók
- að brenna örlítið greni á dagatalakertinu til að fá jólalykt í húsið
- að fara að sofa í nýþvegnum náttfötum og með hrein rúmföt

Ahh. Einfalt líf er svo dásamlegt.

3 December 2007

Þá er búið að steikja laufabrauðið. Reyndar ekki fyrir mitt litla heimili, heldur fyrir hjáleiguna á Rauðalæk, þar sem þrír vinir mínir búa saman og ég á mér annað athvarf. Þar er alltaf að finna dásamlega félagsskap, sjónvarp sem virkar og stórt borðstofuborð fyrir pússlur og ánægjulega kvöldverði. Meira að segja aukaherbergið er kallað Ástuherbergi, þó að ég kjósi nú venjulega að sofa heima hjá mér. Það er jú besti staður í heimi.

Í gær fór ég á Árbæjarsafn, sem er með uppáhaldsstöðunum mínum hér á þessum enda landsins, en þar var í gangi jóladagskrá og verður aftur næsta sunnudag. Það var alveg syngjandi skemmtilegt, og juku fallegt veður og góðir vinir á ánægjuna, svo ekki sé nú minnst á kakóið og pönnsurnar. Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að finna dagskránna hér.

Í gær setti ég líka upp aðventukransinn og aðventuljósið, ég get nú ekki látið yfirvofandi próf stoppa mig í því að njóta aðventunnar. Á stefnuskránni er líka að fara í jólaþorpið í Hafnarfirði og svo á ég miða á jólatónleika nágranna minna Sinfóníuhljómsveitarinnar. Mín vegna mætti desember alveg vera pínulítið lengri. T.d. væri ég til í að skipta hálfum febrúar út fyrir lengri aðventu. Síðastliðin þrjú ár hef ég haft vit á að eyða febrúar annarsstaðar, þar sem hann getur verið andstyggilega dimmur og dapurlegur. Á næsta ári set ég mér sem sagt hér með það fyrir að gera febrúar ánægjulegan mánuð. Hann er nú ekki margir dagar, svo það ætti að vera hægt. Ég þarf bara að muna það þegar þar að kemur....