Þá er búið að steikja laufabrauðið. Reyndar ekki fyrir mitt litla heimili, heldur fyrir hjáleiguna á Rauðalæk, þar sem þrír vinir mínir búa saman og ég á mér annað athvarf. Þar er alltaf að finna dásamlega félagsskap, sjónvarp sem virkar og stórt borðstofuborð fyrir pússlur og ánægjulega kvöldverði. Meira að segja aukaherbergið er kallað Ástuherbergi, þó að ég kjósi nú venjulega að sofa heima hjá mér. Það er jú besti staður í heimi.
Í gær fór ég á Árbæjarsafn, sem er með uppáhaldsstöðunum mínum hér á þessum enda landsins, en þar var í gangi jóladagskrá og verður aftur næsta sunnudag. Það var alveg syngjandi skemmtilegt, og juku fallegt veður og góðir vinir á ánægjuna, svo ekki sé nú minnst á kakóið og pönnsurnar. Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að finna dagskránna hér.
Í gær setti ég líka upp aðventukransinn og aðventuljósið, ég get nú ekki látið yfirvofandi próf stoppa mig í því að njóta aðventunnar. Á stefnuskránni er líka að fara í jólaþorpið í Hafnarfirði og svo á ég miða á jólatónleika nágranna minna Sinfóníuhljómsveitarinnar. Mín vegna mætti desember alveg vera pínulítið lengri. T.d. væri ég til í að skipta hálfum febrúar út fyrir lengri aðventu. Síðastliðin þrjú ár hef ég haft vit á að eyða febrúar annarsstaðar, þar sem hann getur verið andstyggilega dimmur og dapurlegur. Á næsta ári set ég mér sem sagt hér með það fyrir að gera febrúar ánægjulegan mánuð. Hann er nú ekki margir dagar, svo það ætti að vera hægt. Ég þarf bara að muna það þegar þar að kemur....
4 comments:
Mmm.. laufabrauð :P og já, febrúar getur oft verið ansi lengi að líða miðað við að það vantar í hann 2-3 daga !
Bengta
Jeii...Ásta's back. Ég komst í smá jólaskap við að lesa færsluna þína, hef einmitt verið að fresta aðventunni fram á fimmtudaginn.
Ég hlakka svo til að hitta þig og gefa þér risa risa knús!
ps. er alveg sammála þér með febrúar.
pps. þegar völdin verða í okkar höndum skulum við breyta þessu.
ppps. múhahahahaa
Múhahahahaaa.....
ég verd ad vera ósammála med febrúar tví ad madur kvídir alltaf fyrir febrúar en svo tegar kemur ad honum er hann bara lidinn á ótrúlega stuttum tíma, tví ad hann er jú styttri en hinir ! ... :)
en hafdu tad gott í jólaundirbúningi og smákokuáti:)
kv. frá Argentínunni
Freyja
Post a Comment