29 April 2008

Það er langt síðan að ég áttaði mig á því að þegar ég á að vera að læra virðist allt annað skyndilega svo mikilvægt. Eins og að þurrka af bókahillunum. Eða grafa upp netfangið hjá einhverjum sem ég ferðaðist með fyrir löngu og senda viðkomandi póst. Eða lesa Fréttablaðið frá í fyrradag.

Þetta hefur nú náð nýjum hæðum, þar sem ég á að vera að lesa undir próf og þarf að flytja eftir rúmar 2 vikur. Nú er komin hár og breiður stafli af kössum á stofugólfið, þar sem stór hluti búslóðarinnar minnar kúrir eftir að hafa verið alúðlega pakkað niður. Ég hugsa að ég hafi aldrei dútlað jafn mikið við að vefja leirtauinu inn í dagblöð. Og spænsk málfræði dúsar útí horni og bíður eftir athygli.

28 April 2008

Sjáiði bara hvað þær eru flottar!

Listilega smíðaðar símagibbur eftir Jean Luc Cornec, þær er hægt að sjá á Museum für Kommunikation í Frankfurt.

27 April 2008

Magnað myndband. Og eftir að hafa horft á það er um að gera að kíkja hingað


10 April 2008

Ég er frekar ferköntuð og mjög hrifin af öllu skipulagi, en þetta nær nú út yfir allan þjófabálk. Nú á ég pantaðan tíma á snyrtistofu 19 maí, sem ég myndi telja til langtímaplana. Og tíma í klippingu... 30. júní!!

Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið :)
Ég tel mig almennt vera mjög heppna; ég á frábæra fjölskyldu og vini, mér gengur allt í hag og lífið er dásamlegt. Þrátt fyrir þessa heppni virðist ég mjög ratvís á smærri óhöpp...

Eftir óhapp dagsins sting ég aðeins við fæti, en mikla lagni þarf til að vera svona óheppin. Þar sem ég staulast í skólann í morgun, með augun enn hálflokuð og athyglina ennþá lúrandi heima á koddanum næ ég, á göngu minni yfir bílaplan við blokk í Vesturbænum, að stíga á skrúfu. Sem stendur upp á endann og borast í gegnum skósólann og ilina á mér. Ég haltra á bensínstöð í nágrenninu, fæ lánaða töng til að ná skrúfunni úr skónum og held áfram í skólann.

Það að ryðguð skrúfa standi upp á endnn út á miðju plani er eitt, en að ég nái að ramba á hana og slasa mig er annað. Svona, gott fólk, gerast slysin!

4 April 2008

Neeiiii!!!!!

Ég þarf að flytja í vor (sem er ekki skemmtilegt) og þar sem ég er tiltölulega fátækur námsmaður skráði ég mig á biðlista fyrir íbúð á stúdentagörðum (sem er heldur ekki skemmtilegt). Ég get verið afar þolinmóð, en þegar ég er skráð á biðlista af einhverju tagi reikna ég frekar með að færast UPP þann lista með tímanum.

Í byrjun hvers mánaðar þarf að staðfesta umsóknina, og ég hlakkaði heldur betur til að sjá hversu mikið ég myndi færast upp á listanum þegar aðrir ýmist gleyma að staðfesta eða hreinlega hafa gefist upp og fundið húsnæði annars staðar. Ég er á bið eftir 2 gerðum íbúða og heldur búraleg í bragði kíkti ég á stöðuna mína á biðlistanum og hafði þokast upp um eitt sæti, frá 315 upp í 314, og stóð í stað á lista fyrir hina týpuna, í vongóðum 231. Nema hvað, nú er ég búin að færast niður, í 232 og 315 aftur - og eftir að biðlistakerfið var stokkað upp byrjaði ég í 231. Ég færist sem sagt niður á við á listanum!

Og þó að ég sé ekki með skyrbjúg af næringarskorti né eigi grátandi vannærð börn, þá finnst mér þetta ekki sanngjarnt. Og myndi gjarnan vilja vita hvernig biðlistakerfið virkar. Hnusss.

3 April 2008

Mmmm... svona var veðrið á hádegi í dag, í borgum sem ég að eftir að skoða í vor. Mín vegna er þetta bara fínn hiti og mætti alveg vera svona áfram (auðveldara að ganga ef er ekki of heitt sko), en ég veit að það mun verða talsvert heitara þar eftir rúmar 6 vikur. 6 vikur!

2 April 2008

Við undirbúninginn fyrir ferðina ógurlegu hef ég rekist á allskyns fróðleik, en þetta efni hafði ég ekki lesið mér til um áður: hvernig á að reima skóna sína - 33 vinsælar aðferðir (með teiknuðum leiðbeiningum!)

Og ég sem er ekki einu sinni búin að finna rétta bakpokann.