Lalala...
Nú er ég m.a.s. búin að kaupa flug til Spánar í vor!
Svona er planið:
15. maí - seinasta prófið. Spennufall.
16. og 17. maí - pakka búslóðinni og setja í geymslu. Koma blómunum í fóstur.
18. maí - þrífa íbúðina og skila af mér lyklunum.
19. maí - spennufall. Klára að raða í bakpokann.
20. maí - fljúga til Stansted og þaðan til Santander, hvar ég er m.a.s. búin að bóka gistingu.
21. maí - vakna snemma, skoða Santanter pínu um morguninn. Taka rútu til Pamplona. Taka aðra rútu til Roncesvalles. Útvega mér pílagrímapassa. Spennufall.
22. maí - byrja gönguna til Santiago til Compostela, loksins! Ganga í 30-40 daga og njóta lífsins.