15 March 2008

Ó, ó, ó. Þetta á eftir að verður athygliverður dagur. Ég er að fara í fermingarveislu og hitta ættingja sem ég þekki afar lítið, og ég skreið heim um hálfsex í morgun. Eina ástæðan fyrir því að ég er komin á lappir fyrir hádegi er að ég verð að þvo kjólinn sem ég var í í gær til að geta verið í honum aftur í dag.

En allavega skemmti ég mér mjög vel í gær og hlakka til næsta spænskunemadjamms. Ég verð örugglega stálslegin eftir smá lúr í viðbót. Örugglega.

No comments: