15 March 2007

Sacré Cæur í París - og blaður

Það er nú bara ósköp gott að vera komin heim til Íslands. Ég er aftur byrjuð að vinna og lífið fallið í fastar skorður. Það að mér líki það svona ágætlega er örugglega merki um að ég sé að verða gömul. Og það er bara allt í lagi. Auðvitað hefði ég ekkert haft á móti því að dinglast bara í skóla í Salamanca svolítið lengur - en fyrst ég er komin heim þá ætla ég bara að njóta þess að vera hér.

Ég framkallaði filmur úti á Spáni - og sem merki um hvað ég er orðin löt að taka myndir þá leyndust þar myndir frá Frakklandi og Noregi, en þar var ég í október og Nóvember. Leyfi einni þeirra að fljóta með.

000040

8 March 2007

Karnival í Salamanca
var þrælskemmtilegt. byrjaði sakleysislega...
en svo færðist fjör í leikinn þegar líða tók á nóttina.

carnaval1

carnaval4

carnaval6

carnaval7

carnaval3

carnaval5