15 March 2007

Sacré Cæur í París - og blaður

Það er nú bara ósköp gott að vera komin heim til Íslands. Ég er aftur byrjuð að vinna og lífið fallið í fastar skorður. Það að mér líki það svona ágætlega er örugglega merki um að ég sé að verða gömul. Og það er bara allt í lagi. Auðvitað hefði ég ekkert haft á móti því að dinglast bara í skóla í Salamanca svolítið lengur - en fyrst ég er komin heim þá ætla ég bara að njóta þess að vera hér.

Ég framkallaði filmur úti á Spáni - og sem merki um hvað ég er orðin löt að taka myndir þá leyndust þar myndir frá Frakklandi og Noregi, en þar var ég í október og Nóvember. Leyfi einni þeirra að fljóta með.

000040

2 comments:

Anonymous said...

Hæ Ásta mín kæra vinkona... alltaf gaman að fylgjast með hvað þú ert að bralla. Kær kveðja Hófí úr húsó

Anonymous said...

Blessuð frænka, ég hef nú aldrei hitt þig en mamma þín gaf mér upp blogg slóðina þína og ég hef kíkt hérna við stöku sinnum. Gaman að því. Vonandi mætirðu á ættarmót í sumar svo að ég geti kynnst þér og þínum svolítið betur.