Mæli með:
kókoskaffinu frá Kaffitári. Unaður í loftþéttum umbúðum.
Mæli ekki með:
Létt G-mjólk í kaffið. Hugmyndin er ekki slæm en bragðið er það. Ég mun sko halda mig við þessa fjólubláu.
29 September 2008
28 September 2008
Það er afar fallegur haustdagur, einn af þessum sem er svo upplagður til langra gönguferða. Svo er líka sunnudagur og þá er svo gott að koma heim með rjóðar kinnar af útiverunni og vera sáttur við lífið.
Ég sit samt bara í helli mínum og læri. Ekki það að ég ætti að vorkenna mér þar sem mér finnst bæði gaman að læra og það er mitt val að gera svo, en ég hef hummað það fram af mér undanfarið og fer að komast í klípu ef ég tek ekki til handanna. Ég vorkenni mér samt doldið...
Sambýlismaðurinn (ekki þessi sem ég deili rúmi með heldur hinn) skrapp í hverfisbúðina og mig dauðlangaði að biðja hann að kaupa fyrir mig sælgæti/gott kaffi/sætabrauð/óhollt nasl en stóðst freistinguna. Þá er bara að standast freistinguna um að slá lærdómnum á frest. Ef ég rusla næsta verkefni af kemst ég kvikmyndahátíðina í kvöld og það væri nú gaman. Spænsk málvísindi, nú fáiði sko að kenna á því!

27 September 2008
Head of Skate
Ég hef nú ekki mikið álit á Sarah Palin en ætla svo sem ekkert að fjölyrða um það hér. Skoðið frekar "Disney" útgáfuna af því sem gæti gerst...
"An Alaskan hockey mom becomes Vice President in the wackiest family comedy of the year! Sound familiar?"

26 September 2008
Kvikmyndahátíð og gleði
RIFF er byrjuð. Ég er strax byrjuð að njóta hátíðarinnar og geng um með hælætaða dagskrá í töskunni enda búin að pæla út hvenær ég kemst á hvaða mynd. Næstu 2 vikurnar verður sem sagt hægt að finna mig á þremur stöðum: í vinnunni, skólanum og í bíó. Þeim sem langar með í bíó er velkomið að hafa samband vilji þeir félagsskap, því þrátt fyrir planið er ég sveigjanleg ef um áhugaverðan selskap er að ræða.
25 September 2008
24 September 2008
20 September 2008
Vá!
Ef ég kynni að prjóna (og hefði fulllt af tíma í kjánalega hluti) þá myndi ég prjóna svona:

Fleiri *ehemm* athygliverðar hugmyndir er að finna á whywouldyouknitthat.blogspot.com
Og svo myndi ég læra að hekla, og búa til svona drápssagartrefil, mér finnst hann gegt kúl (og fyrir handlagna þá fæst uppskriftin hér):

19 September 2008
18 September 2008
Ég hef verið svolítið að skoða örsögur undanfarið, aðallega eftir Augusto Monterroso. Þetta er nýja uppáhaldsörsagan mín (eftir að hafa pælt í þessum sjanra eru þær margar), en hún kom út árið 1972 í bókinni Movimiento perpetuo:
El mundo
Dios todavía no ha creado el mundo; sólo está imaginándolo, como entre sueños. Por eso el mundo es perfecto, pero confuso.
Og í enskri þýðingu Edith Grossmann hljómar hún svona:
The World
God has not yet created the world; he is only imagining it, as if he were half asleep. That is why the world is perfect, but confused.

17 September 2008
Uppgötvun
Sunnudagshafragrauturinn er miklu betri þegar eldaður af alúð af einhverjum öðrum. Og á sunnudögum.
Subscribe to:
Posts (Atom)