Tæp vika í brottför :)Það er langt síðan ég hef undirbúið ferðalag svona vandlega, venjulega hef ég bara hent einhverju í bakpokann og lagt af stað, m.a.s. þegar ég fór í tjaldferð um Indland og síðar um Austurlönd nær; í seinni ferðinni þurfti ég bara að kaupa varmanærföt þar sem ég fór um hávetur, það var nú allur undirbúningurinn.
Nú aftur á móti hef ég verið að dunda mér við að tína til það sem ég þarf að hafa með mér, er búin að velja mér lítinn og léttann bakpoka þar sem gamli pokinn minn sem hefur þjónað mér vel í mörg ár er allt of stór og þungur og auk þess þreyttur eftir að hafa lent í ýmsu. Á ferð okkar um austur Afríku dúsaði hann oft uppi á toppi á hinum ýmsu farartækjum innan um kaffi á leið á markaðinn ásamt geitum og öðrum búfénaði. Smurningsslys í skotti á jeppa við landmælingar í Costa Rica hefur líka sett marki sitt á greyið.
Núna skiptir vigtin öllu máli og föt eru valin eftir þyngd og eiginleikum en ekki útfrá fagurfræðilegu sjónarmiði, þar sem ég á eftir að bera allt sem ég þarf á bakinu næstu vikurnar. Fötin þvæ ég og þurrka í lok dags.
Og hér er það sem ég tek með. Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á útivistargræjum og pökkun þá er þetta upplagður staður til að hætta að lesa.
-bakpoki (30 lítra poki sem súperléttur, 620 grömm)
-svefnpoki
-stakkur
-langermabolur úr ull
-buxur (léttar jógabuxur sem þorna fljótt)
-handklæði (eitt af þessum léttu asnalegu ferðahandklæðum sem þurrka eiginlega ekki neitt. Létt er lykilorðið)
-1 sett af nærfötum til skiptanna
-2 pör af sokkum til skiptanna
-sandala til að ganga í þegar ég er kvalin af blöðrum og til að vera í á kvöldin
-ipod (sem er líka til að geyma myndir á þegar myndavélin fyllist)
-gps tæki (til að skrá leiðina svo ég geti kortanördast þegar ég kem heim)
-gsm sími (sem virkar líka sem auðkenni fyrir bankann, sem klukka og öryggistæki)
-snyrtivörur (tannbursti, tannkrem, sápa fyrir húð, hár og föt)
-skyndihjálparpoki (aðallega plástrar fyrir fæturnar, og nál og tvinni fyrir blöðrur. Sótthreinsar nálina, þræðir spottann í gegn og skilur hann eftir – et violà: frárennslikerfi fyrir blöðrur!)
-Dagbók, penni, vasahnífur
-Öryggisnælur til að hengja blautan þvott á bakpokan
-Plastponcho
Allt í allt vegur þetta 4 kíló.
Ég fer ekki með bikini, tek bara nærföt án blúndudrasls sem ég get bara notað til að synda í ef mér sýnist svo. Það eru hvort eð er allir þreyttir, skítugir og afslappaðir sem eru á þessari göngu. Ég er ekki viss um að taka með mér bók, en kannski finn ég eitthvað á flugvellinum sem mig langar að lesa. Ferðahandbók tek ég ekki með, er búin að safna uplýsingum á eitt A4 blað sem ég prenta út, með upplýsingum báðu megin og með smáu letri. Ef ég týni því get ég líka alltaf prentað það út aftur úr tölvupóstinum mínum.
Í mittistösku hef ég múslíkex, sólarvörn, myndavélina, kort og pening. Í hana get ég líka sett dagbókina og stakk þegar ég skoða mig um eftir að vera komin í náttstað. Á göngunni verð ég svo í stuttermabol og stuttbuxum, léttum gönguskóm, með göngustafi í höndunum og sólgleraugun á nefinu :)
Mér finnst þetta afar lítill farangur þegar hann er kominn í pokann, en verð örugglega á öðru máli þegar ég hef hann á bakinu í marga tíma á dag. En ég er mjög montin að hafa komið vigtinni niður í þessi 4 kíló án þess að hafa farið í þær öfgar að skera haldfangið af tannburstanum etc. eins og sumir reyndir göngumenn gera! Svo bætast við hátt í 500 grömm í mittistöskunni og líter af vatni í bakpokann.