19 May 2008

Eftir 12 tíma verð ég búin að tékka ég mig inn í flug til London og þaðan fer ég til Santander og gisti eina nótt, tek svo rútu til Pamplona og aðra til Roncesvalles sem er þorp nálægt landamærunum við Frakkland. Svo tekur við ca. 5 vikna ganga. Og ég á afar erfitt með að bíða.

Nú þegar ég er búin að pakka fer ég yfir dótið í huganum og er handviss um að ég sé að gleyma einhverju. Undanfarna daga hef ég farið að slá varnagla, ég hef nefnilega ekki mikla hugmynd um hvað ég er að fara út í eða hvernig mér tekst þetta verkefni. En ég er handviss um að það verði mjög erfitt og algerlega frábært. Nema ef að ég fótbrýt mig í fyrstu brekkunni. Ef það gerist fer ég samt létt með að eyða nokkrum vikum á Spáni, svo þetta verður allt í lagi á hvern veginn sem fer; vel eða betur.

4 comments:

Anonymous said...

góða ferð skvísí.
kveðja úr keflavikinni Heiða skvísí

Anonymous said...

Vona að ferðin út hafi gengið vel og fyrstu dagarnir ekki verið of strembnir. Hlakka til að heyra frá þér.

Kv.
Keli

Anonymous said...

Heil og sael min kaera.
Vona ad allt gangi vel...nu ef foturinn er brotinn og takinn lodrandi blodrum ta kemur tu bara til min og sefur i fortjaldinu :)
Buena suerte chica,
Asa Marin

Anonymous said...

Ertu nokkuð týnd?
birna