26 November 2007

Undanfarna daga hef ég setið við skriftir, er að skrifa ritgerð um breytingarnar frá einræðisríki til þingbundinnar konungsstjórnar á Spáni. Þetta er nú bara skemmtilegt, og mér finnst afar gott að vinna bara heima hjá mér, í litla kotinu. Það er jú einu sinni besti staður í heimi. Ég er búin að snúa sólarhringnum við, sem eykur á einangrunartilfinninguna þar sem morgunútvarpið er löngu búið þegar ég fer á fætur. Aldrei hélt ég að ég gæti unnið á næturnar, en mér líkar það bara prýðilega. Í svona einangrun virðast ferðirnar milli eldhússborðsins (þ.e. vinnuaðstöðunnar) og eldavélarinnar (þ.e. kaffiuppáhelliaðstöðunnar) gríðarleg ferðalög, hvað þá leiðangrarnir þegar ég fer að heimsækja Kisu hinumegin í hverfinu, þar sem ég er stundum kattfóstra. Fjarlægðir eru greinilega afstæðar, ég hafði áttað mig á að lengri fjarlægðir væru gjarnan undirorpnar huglægu mati, en ekki þessar örstuttu. En ég verð bara að taka þessar pælingar upp aftur síðar, þar sem kaffið er tilbúið, Franco nýdauður og allt að gerast.

25 November 2007

Hámark húslegheitanna...

... er að eiga, ekki bara búrskáp, heldur að eiga tólg í búrskápnum. Nú finnst mér ég afar búkonuleg. Og hlakka til að steikja laufabrauð, sem verður gert eftir ritgerðarskil og próf þessarrar viku. Maður þarf jú alltaf að hafa eitthvað til að hlakka til.

22 November 2007

Eftir að hafa setið sveitt við að læra undir próf í spænskri málfræði og hafa leyst það verkefni prýðisvel af hendi, á mín nú skilið að gera eitthvað skemmtilegt. Og hvernig lyfti ég mér svo upp á fimmtudagssíðdegi? Jú, ég fór og hlustaði á áhugavert erindi um þýðingu bókar sem var skrifuð mikið til í viðtengingarhætti. Eftir að hafa komið, séð og sigrað viðtengingarhátt nútíðar og þátíðar í spænsku þessa önn, þykir mér nefnilega gaman að heyra um hann í öðrum tungumálum, þó að ég þjáist nú ekkert af viðtengingarháttsblæti. Svo mun ég læra viðtengingarhátt framtíðar á næstu önn. Og hlakka til. Og hef bara almennan áhuga á þýðingum. Nú hef ég sennilega gefið þeim sem halda að ég sé nörd byr undir báða vængi. O jæja. Nú er best að snúa sér að alvöru að næsta verkefni, sem er að gera ritgerð um pólitík á Spáni 1975-81. Kjörið meðlæti eru mandarínur.

17 November 2007

Þegar ég skelli mér í regnbuxur utanyfir náttbuxurnar til að fara út í búð, um kvöldmatarleytið, til að kaupa mér eitthvað fljótlegt í svanginn getur það þýtt tvennt:
a) ég er algjör letihaugur og er þessvegna ekki búin að skipta um föt þegar svona langt er liðið á daginn
b) það styttist í próf, og ég tek ekki tíma frá lærdómnum í smáatriði eins og að skipta um föt

Sem betur fer á það seinna við, og ég er búin að bókmenntagreinast um Suður Ameríku þvera og endilanga. Eftir kvöldmat held ég í bókmenntagreiningaleiðangur til Spánar, til staðar í La Mancha “…de cuyo nombre no quiero acordarme…”.

Spennandi líf. Þrususpennandi.

10 November 2007

Blogg splogg, er ekki alltílæ að skrifa hérna á hálfs árs fresti? Gott markmið væri kannski að stefna á ársfjórðungsskýrslur, það ætti ekki að vera of krefjandi.

Ég fór í Húsó ríjúnjon nýlega, og þar var pundað svo mikið á mig fyrir að hafa ekki haldið þessarri síðu aktívri, að ég ákvað að nú væri að duga eða drepast; blogga eða loka þessarri síðu. Og mig langar pínulítið að halda henni opinni fram á vorið, þar sem ég er með plön á teikniborðinu um lítið ferðalag og langar kannski að deila ferðasögunni með heiminum þegar þar að kemur.

Og hvað er svo að frétta af mér? Jú, í haust hætti ég í einni vinnu af tveimur og minnkaði við mig í vinnunni sem ég hélt eftir, og fór í spænskunám við Háskóla Íslands. Það er nú það gáfulegasta sem ég hef gert lengi og ég er alveg syngjandi kát með þessar breytingar. Námið er mjög skemmtilegt og barasta í alla staði frábært, og það besta er að nú sé ég að ég er bara ekkert heimsk þó að ég hafi hætt í sálfræðináminu fyrir 5 árum síðan eða svo, því nú gengur mér alveg glimrandi vel. Sálfræðin var bara ekki rétt val og ekki á réttum tíma. Sennilega vantaði mig bæði áhuga og tíma til að sinna því almennilega, en nú er bæði nóg af áhuga og næstum nóg af tíma. Ég vinn bara einn dag í viku og er glöð að halda því; ég þarf vissulega á því að halda fyrir fátæklegan fjárhaginn en þar fyrir utan mundi ég sakna vinnunnar og fólksins þar og starfsandans hefði ég hætt alveg.

Það var svolítið erfitt að velja hvort ég myndi taka fyrir íslensku eða spænsku, svo að fyrstu vikuna fór ég í alla byrjendakúrsana í báðum fögum og valdi svo. Mig langaði reyndar aðeins meira í spænsku, svona innst inni, en var hrædd um að ég hefði ekki nægilega góðan grunn í henni þar sem ég lærði hana aldrei í menntaskóla, og lærði reyndar ekki málfræði fyrr en ég var búin að tala spænsku í dálítinn tíma og þurfti þá að fara að laga villur sem ég hafði tileinkað mér. Ég valdi spænskuna, en langar líka í íslensku og það getur vel verið að ég taki hana til 30 eða 60 eininga, mér liggur ekkert á að ákveða það.

Og hvað ætla ég svo sem að gera við spænsku í framtíðinni (mjög algeng spurning sem ég fæ oft þessa dagana)? Ég hef ekki hugmynd. Og það er bara allt í lagi, ég hef trú á því að ef þú hefur áhuga á því sem þú er að fást við, verði þér alltaf eitthvað úr því. Markmiðið í haust var að velja bara það sem mér þætti áhugaverðast og hafa gaman að því. Þannig er nú það.

Sem sagt: það er bara allt gott að frétta, þó það gerist kannski ekki mikið í lífinu hjá mér um þessar mundir, ég bý enn í notalega hreiðrinu mínu í Vesturbænum og þar er alltaf til te og kaffi fyrir gesti sem líta við.

Og eitt í viðbót: eftir þróttmikla andspyrnu gafst ég upp á haustdögum og játaði mig sigraða af Facebook. Ég hef antípat á öllu á netinu sem þarf að skrá sig fyrir, séu það póstlistar eða annað húmbúkk, en ég lét undan fyrir nokkru síðan - og finnst það bara ekkert leiðinlegt. Það er sem sagt hægt að finna mig þar líka, þó ég sé ekki líkleg til að áframsenda vampírubit eða spangólandi varúlfa. Jamm.

Næsta uppfærsla verður þá sennilega ársuppgjör, nema ég stefni að því að verða duglegri að birta færslur en minn kæri vinur Kristján Ketill. Það er nú létt verk og löðurmannlegt, en það verður að viðurkennast að ég hef nú líka talsvert meiri frítíma en hann, enda er ég bæði einhleyp og pólitíkurfrí.

Untitled-2
Ásta virðuleg í vinnunni