28 September 2005

Ég var klukkuð, en ég tek ekki þátt í svona vitleysu og hugsa viðkomandi þegjandi þörfina.

Ég er hinsvegar meira en til í að telja upp 5 staðreyndir varðandi væntanlegt ferðalag, enda er fátt annað sem kemst að hjá mér þessa stundina.

- Ég er búin að panta flug til Tyrklands. Ég flýg þann 30. nóvember til Stansted og morguninn eftir frá Heathrow til Istanbul. Ekki hef ég neinar áhyggjur af bið í London, þar sem ég læt mér aldrei leiðast og hef skoðað þessa síðu.

- Í 5 vikur ætla ég að sofa í tjaldi. Það er allt í lagi, ég fór í 3 mánaða tjaldferð til Indlands og Nepal fyrir nokkrum árum og það væsti nú ekki um mig. En ég er voðalega hrædd um að það sé næturnar séu kaldar í Tyrklandi.

- Ég hlakka líka til að fara til Spánar. Ég hef ekki komið til Salamanca áður, en hef heyrt að það sé alveg frábær borg. Eitt af tilhlökkunarefnunum er að vera ein í herbergi, það hefur ekki gerst í langan tíma og er þreytandi til lengdar, en er hluti af flökkulífinu.

Æi, ég nenni ekki meira. Er komin úr allri æfingu í bloggi. Þeir sem kíkja hérna við eiga hvort eð er eftir að heyra nóg af þessu ferðalagi.

26 September 2005

Ég er ekki fyrr farin í yfirlýst blogghlé en ég hef eitthvað að segja. Og hvað er svo sem nógu merkilegt til að ég ómaki mig við að hripa hér nokkrar línur? Jú, ég er búin að ákveða hvað ég geri mér til dundurs í vetur: í byrjun desember tíni ég saman pjönkur mínar, pakka þeim bakpokann og held til Tyrklands. Þaðan ætla ég að ferðast um Sýrland, Jórdaníu og til Egyptalands. Í janúar ætla ég síðan að fara til Spánar og læra spænsku í Salamanca. Þannig er nú það.

Þetta er eins og ólétta, með öllu styttri meðgöngutíma þó, fyrst ferðin er ákveðin og nokkuð öruggt að allt gangi upp get ég deilt fréttunum með heimsbyggðinni (ég er auðvitað hógværðin uppmáluð, það er enginn markhópur of stór fyrir mig). Húrra, húrra! Og nú get ég byrjað að huga að undirbúningi ferðarinnar; er þar um að ræða stórskemmtileg atriði eins og vegabréfsáritanir, ferðatryggingar, frágang fjármála og önnur klassísk númer. Húrra samt.

ITC

17 September 2005

Ég hef ekki staðið mig sem skildi í blogginu og er hér með farin í yfirlýst bloggfrí. Ég mun sennilega taka upp þráðinn þegar ég reima á mig ferðabomsurnar að nýju í desember og legg hlýrri lönd undir fót. Þar til verða myndir að duga, en ég hef nýlega sett inn myndir frá Costa Rica og sumrinu sem leið.