28 September 2005

Ég var klukkuð, en ég tek ekki þátt í svona vitleysu og hugsa viðkomandi þegjandi þörfina.

Ég er hinsvegar meira en til í að telja upp 5 staðreyndir varðandi væntanlegt ferðalag, enda er fátt annað sem kemst að hjá mér þessa stundina.

- Ég er búin að panta flug til Tyrklands. Ég flýg þann 30. nóvember til Stansted og morguninn eftir frá Heathrow til Istanbul. Ekki hef ég neinar áhyggjur af bið í London, þar sem ég læt mér aldrei leiðast og hef skoðað þessa síðu.

- Í 5 vikur ætla ég að sofa í tjaldi. Það er allt í lagi, ég fór í 3 mánaða tjaldferð til Indlands og Nepal fyrir nokkrum árum og það væsti nú ekki um mig. En ég er voðalega hrædd um að það sé næturnar séu kaldar í Tyrklandi.

- Ég hlakka líka til að fara til Spánar. Ég hef ekki komið til Salamanca áður, en hef heyrt að það sé alveg frábær borg. Eitt af tilhlökkunarefnunum er að vera ein í herbergi, það hefur ekki gerst í langan tíma og er þreytandi til lengdar, en er hluti af flökkulífinu.

Æi, ég nenni ekki meira. Er komin úr allri æfingu í bloggi. Þeir sem kíkja hérna við eiga hvort eð er eftir að heyra nóg af þessu ferðalagi.

2 comments:

Anonymous said...

hæbb...
hljómar spennandi ferðalag!
er strax farin að hlakka til að fylgjast með blogginu þínu þegar þú ert farin í flakk :)

Anonymous said...

Hæ hæ alltaf nóg að frétta af þér allavegna ef það eru fréttir þá eru það fréttir í lagi flott ferðalag hjá þér!! ég fór einhvernvegin af hálfgerðri tilviljun inná síðuna þína hélt þú værir ekkert að skrifa og komst þá að þessum fréttum. Var hálft í hvoru að leita af einhverju líklegu heimilisfangi hjá þér:) þar sem ég var að skrifa þér jólakort en ég sendi það bara á Jökulsá og sendi þér svo e-mail síðar kveðja Ragna V