
Mensa Veisluþjónusta. Finnst engum þetta fyndið nema mér?
Það mætti segja mér að nafngift fyrirtækisins hafi ekki orðið til á einni af mensa-mínútum eigendanna. Ætli þarna sé hægt að fá ækjú-stig í heimsendingu? Og stóran skammt af brauðstöngum og kók læt, takk.
Annars er Mensa latína og mun þýða borð, og er það líkleg skýring á nafngiftinni, þaðan kemur einmitt spænska orðið mesa. Ég get samt ekki annað en brosað þegar ég geng framhjá skiltinu og sé fyrir mér gamla karla með kúluhatta og einglyrni að spæna í sig snittur af pappadiskum, leysandi færa-til-eldspýtur þrautir.
1 comment:
mensa a itölsku þyðir mötuneyti :) þá veistu það
Post a Comment