10 October 2005

Um þessar mundir er ég á námskeiði um Madrid, hjá hinum víðlesna og orðheppna Kristni R. Ólafssyni. Salamanca er í 2 tíma akstursfjarlægð frá Madrid, svo ég get auðveldlega skellt mér þangað í nokkra daga eða svo, til að njóta höfuðborgarinnar. Nú veit ég líka slatta um sögu Spánar - og nokkrar krassandi sögur af einræktuðu kóngafólki sem gat börn hvert við annað þangað til ættartréin voru orðin eins og kræklótt bergflétta og afkvæmin ekki hæf til að stjórna hnífapörum, hvað þá spænska heimsveldinu. Gaman að þessu.

koi

2 comments:

Anonymous said...

Hae. Gaman í Svíthjód. Hugsa oft til thín. Kannski ég skrifi vid taekifaeri. Ertu til í ad láta mig vita heimilisfangid :o)

Ásta Kristín said...

Lítið mál væni minn. Og hver veit nema að þú fáir lítið b´ref með í leiðinni. *Faðmlag*