Ég er ekki fyrr farin í yfirlýst blogghlé en ég hef eitthvað að segja. Og hvað er svo sem nógu merkilegt til að ég ómaki mig við að hripa hér nokkrar línur? Jú, ég er búin að ákveða hvað ég geri mér til dundurs í vetur: í byrjun desember tíni ég saman pjönkur mínar, pakka þeim bakpokann og held til Tyrklands. Þaðan ætla ég að ferðast um Sýrland, Jórdaníu og til Egyptalands. Í janúar ætla ég síðan að fara til Spánar og læra spænsku í Salamanca. Þannig er nú það.
Þetta er eins og ólétta, með öllu styttri meðgöngutíma þó, fyrst ferðin er ákveðin og nokkuð öruggt að allt gangi upp get ég deilt fréttunum með heimsbyggðinni (ég er auðvitað hógværðin uppmáluð, það er enginn markhópur of stór fyrir mig). Húrra, húrra! Og nú get ég byrjað að huga að undirbúningi ferðarinnar; er þar um að ræða stórskemmtileg atriði eins og vegabréfsáritanir, ferðatryggingar, frágang fjármála og önnur klassísk númer. Húrra samt.
No comments:
Post a Comment