Ég hafði hugsað mér að blogga alveg heilan helling meðan ég væri úti, en svo bara langaði mig það ekkert á meðan á göngunni stóð, nennti ekki að finna nettengdar tölvur og vildi ekki fara með tíma í það. Það er sagt að ekki fyrirfinnist sjálfhverfari mannvera en nútíma pílagrímur, sem gengur fyrir sjálfan sig en ekki vegna trúarlegra ástæðna, og klárlega átti það við um mig.
Ferðin gekk þrusuvel, frá upphafi til enda, fékk ekki nema eina blöðru og sólbrann ekkert, enda úrkomumesti maímánuður í 60 ár og bændur á nippinu yfir uppskerubresti og pílagrímar óðu leirdrullu upp að hnjám. Eftir fáa daga ákvað ég að ganga bara í stuttbuxum þó það væri hráslagalegt á morgnana, það var auðveldara að þvo leggina í sturtunni í lok dags en að handþvo leirugar buxnaskálmar. Ég gekk meiraðsegja í hagléli og alles. Fyrirfram átti ég von á að þetta yrði alveg ógeðslega erfitt og ég myndi á tímum bara setjast niður og grenja af þreytu og hungri og almennum pirringi og reiði en það kom nú aldrei til þess. Ég fann fyrir strengjum eftir fyrstu þrjá dagana en síðan ekki söguna meir, og þrátt fyrir að ganga alla jafna 6-7 tíma á dag var þetta barasta alveg yfirstíganlegt. Og hrikalega gaman. Og gott fyrir sálina. Og ég væri sko meira en til í að endurtaka þetta næsta sumar. Einhver með?
Meiraðsegja var ég komin í svo góðan göngugír að þegar kom að fyrirhuguðum seinni hvíldardegi af tveimur, en sá fyrri tók ég í Burgos eftir 11 daga, tímdi ég ekki að stoppa og hélt bara áfram. Eftir 32 daga göngu kom ég svo til Santiago de Compostela og eftir að hafa túristast í nokkra daga flaug ég heim.
Og nú er ég farin að safna aftur í ferðasjóðinn. Sem er bjartsýnt af fátækum háskólanema, en fyrst mér hefur tekist að nurla saman fyrir ferðalögum hingað til á það alveg að takast áfram, þrátt fyrir sorglega þjáða krónuna.
Hér er svo að sjá myndir úr ferðinni, en þessi hér fyrir neðan var tekin þegar 1 dagur var eftir á áfangastað.
1 comment:
Hæhæ
Takk fyrir emailið! Já nú er maður barasta orðin fulltime mamma! Aldeilis viðbrigði skal ég segja þér :) Annars langaði mig bara til að hrósa þér fyrir þessar myndir, þær eru alveg meiriháttar og mig klæjar sko í tærnar að koma í svona ferð með þér!!!
Kv Birna
Post a Comment