
Hm. Ég held ég eigi bara ekki við nein vandamál að stríða. Nema að vera aðeins of þung, eiga eftir að þrífa baðherbergið og forstofuna fyrir flutningana, nú og kannski að hafa drukkið of mikið kaffi í morgun. Ég hugsa að feng shui og listþerapía hjálpi ekki til við neitt af ofantöldu. Nú svo bíður mín líka próf í vikunni, um spænskar bókmenntir 19. og 20. aldar. Ekki feng shuia ég það. Né ástand krónunnar. Enda er það ekki alfarið mitt vandamál þó það snerti mig aðeins. Þó er þetta allt líklegra en þessi æðislegi koss sem mér er spáður. Ég sé ekki hvernig hann passar inn í próflestar- og þrifaplan kvöldsins. Húmbúkk þessar stjörnuspár.
No comments:
Post a Comment