12 March 2008

Lalala...

Nú er ég m.a.s. búin að kaupa flug til Spánar í vor!

Svona er planið:
15. maí - seinasta prófið. Spennufall.
16. og 17. maí - pakka búslóðinni og setja í geymslu. Koma blómunum í fóstur.
18. maí - þrífa íbúðina og skila af mér lyklunum.
19. maí - spennufall. Klára að raða í bakpokann.
20. maí - fljúga til Stansted og þaðan til Santander, hvar ég er m.a.s. búin að bóka gistingu.
21. maí - vakna snemma, skoða Santanter pínu um morguninn. Taka rútu til Pamplona. Taka aðra rútu til Roncesvalles. Útvega mér pílagrímapassa. Spennufall.
22. maí - byrja gönguna til Santiago til Compostela, loksins! Ganga í 30-40 daga og njóta lífsins.

2 comments:

Anonymous said...

Hvað eru mörg spennuföll í því???? hihihihihi.
kveðja Heiða

Ásta Kristín said...

Þónokkur! Ég væri í rauninni alveg til í að spóla yfir næstu tvo mánuðina, þar sem bíða mín bara próf, fyrirlestrar, ritgerðir og flutningar. Ekkert af ofantöldu er á topp 10 listanum hjá mér.