14 December 2007

Það er auðvelt að gleðja mig

og það gerir Rás 1 á hverjum degi. Fyrir íslensku- og almenna tungumálanörda mæli ég með þættinum Vítt og breitt frá deginum í dag, en hlutinn Íslenskt mál var aldeilis skemmtilegur. Og svo færir Rás 1 okkur maraþonjólatónleika á sunnudaginn, heim í stofu (eða eldhús, eða hvar sem við höfum viðtækin eða tölvurnar). Gert verður samt hlé um þrjúleitið til að flytja útvarpsleikhúsið, sem er eins gott, því það er svolítið langt að bíða í viku eftir næsta þætti.

Ég er að reyna að sanfæra mig um að ég geti sko alveg hlustað á útvarpið, drukkið kaffi, borðað mandarínur og einbeitt mér að því að læra undir próf í bókmenntafræði, á spænsku, allt í einu. Hvað er íslenska orðið yfir multi-tasking?

2 comments:

Þórunn Gréta said...

Rás 1 eða ekki neitt!

Ef þér tekst að halda einbeitingu yfir svona mörgu, þá er mítan um að konur séu með múltifúnksjónsheila hugsanlega rétt... reyndar veit ég að hún er ekki alfarið login, því mamma er þannig. Hins vegar er ég algjör karlmaður og verð að gera einn hlut í einu. Ég neyðist því, í stað þess að halda á lofti samsæriskenningum um að svona séu engar konur, bara til þess að taka ofan fyrir ykkur alvöru konum ;)

Ásta Kristín said...

Já... ég ætla nú ekki að halda fram að ég sé flink að gera margt í einu, en ég gefst samt ekki upp á að reyna það!