Nýlega varð ég þrítug og það var nú bara alveg syngjandi skemmtilegt. Ég hef ekki haldið upp á afmælið mitt í nokkur ár, en á örugglega eftir að gera það á hverju ári hér eftir. Þar sem mér þykir mjög gaman að hitta fólk, en helst ekki marga í einu, skipti ég afmælispartýinu í þrennt; á afmælisdaginn kom fjölskyldan í kaffi og kökur og spjall, nokkrum dögum síðar komu nokkrir vinir í heimsókn og þriðji í afmæli var menningarferð í Borgarnes með kærum vini. Þar sáum við sýninguna Mr. Skallagrímsson, fengum okkur kaffi og fórum svo á jazztónleika. Alveg dandalans fínt. Kærar þakkir fyrir heimsóknirnar og allar kveðjurnar sem ég hef fengið.
Með fylgja svo myndir frá Gróttu frá síðasta sumri.


2 comments:
Til hamingju með þrítugs afmælið :) gott að heyra að þú áttir góða daga :)
Sæl og blessuð og takk fyrir síðast. Langaði til að láta þig vita af nýja blogginu mínu http://kristjanketill.blog.is ég skal lofa að vera duglegur að blogga núna næstu vikurnar :)
Post a Comment