27 February 2008

Ég hef mjög svo gaman að orðum og hef gaman af að heyra nýyrði, hvort sem er á íslensku, ensku eða spænsku. Í gær heyrði ég skemmtilegt orð sem ég hef ekki heyrt áður, sögnina bagonize, sem lýsir örvæntingarfullri biðinni eftir töskunni við farangursbeltið á flugvellinum.
---
Ég hef verið, og er enn, kvefuð, sem er ekkert skemmtilegt. Fyrir vikið er ég búin að hanga heima hjá mér og hanga á netinu, þar sem mér finnst ég ekki hafa orku til að takast á við þunglyndislegar 19. aldar skáldsögur eða málfræði (sem er samt frekar léleg afsökun. Ef ég get setið í sófanum og lesið eitt þá ætti ég alveg eins að geta lesið annað).

Eitt af því sem ég hef verið að skoða eru málvísindi lolkatta sem er voða gaman af því
a) málvísindi eru skemmtileg
b) kisur eru sætar
c) í lolkattnesku fær sköpunargáfan útrás en getur samt stuðst við reglur

Það er m.a.s. verið að þýða biblíuna á lolkattnesku. Hér eru helstu reglur og hér er orðabók. Svo er fullt af greinum á netinu um efnið, en þar sem þessi tunga hefur þróast mjög hratt eru flestar sem ég renndi í gegnum þegar orðnar úreltar.

Aðallega fær þetta mig samt til að brosa og það er nú ekki svo lítils virði.

No comments: