Gleði gleði!
Þessi mikla hamingja er aðallega tilkomin vegna þess að nú er ég búin að fá niðurstöður úr öllum kúrsunum mínum frá haustönninni. Meðaleinkunnin mín fyrir þessa 5 kúrsa er 8,6 og
ég er ferlega montin og glöð. Þetta þýðir líka að bráðum fæ ég útgreidd námslán, og eftir útreikninga dagsins sé ég að ég á 80.000 í afgang (sem ég hafði reyndar lagt upp með, það er ekki eins og aukapeningur dúkki upp bara sisvona) sem fer beint í ferðasjóðinn minn, sem vex smám saman og þó hann sé ekki digur þá hann að duga fyrir vorferðinni sem ég er að plana.
Í kvöld er ég svo að fara út að borða með stelpum úr skólanum, á morgun ætla ég að fara á bókasafnið og eiga rólegan dag og dingla mér, á þriðjudaginn fer ég í bíó, á fimmtudaginn í leshring, á föstudaginn til Akureyrar... ég má þakka fyrir að koma vinnu, skóla og rækt að fyrir sósjallífinu.
Janúar er bara ekkert leiðinlegur mánuður, snjórinn fer ekki einu sinni í taugarnar á mér og almennt hef ég heiminn í hendi mér þessa dagana.
19 January 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Peningar í afgang... Býrð þú ekki á sama landi og við hin??
Birna
Jú jú... ég skammtaði bara roooosalega naumlega þegar ég skipti peningnum niður á mánuði. Rosalega. En nú er ég voða ánægð með það :)
Post a Comment