13 January 2008

Bíóferðir síðasta árs

Ég man annað slagið eftir bókum sem ég las á síðasta ári en gleymdi að setja á listann í færslunni hér á undan. Ég gleymdi m.a. Karítas án titils eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur sem ég hafði lesið áður, og Þriðja táknið og Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur og Afturelding eftir Viktor Arnar Ingólfsson. En nóg um bækur í bili.

Eftirtaldar myndir sá ég í bíó á síðasta ári. Mér þykir afar gaman að fara í bíó en er ekki nógu dugleg við það, nema þegar ég er á Spáni. Þar bæði kostar minna að fara í bíó og ég tel mér trú um að það sé bara hollt fyrir mig að fara í bíó því kannski muni einhver orð eða orðasambönd síast inn í kolinn, en þar eru allar kvikmyndir sýndar með spænsku tali. Ég hugsa að listinn sé ekki jafn gloppóttur og bókalistinn, en þó gæti nú ein eða tvær myndir hafa gleymst. Þetta eru 27 myndir og því lítur út fyrir að ég fari í bíó ca. aðra hverja viku, en sannleikurinn er sá að ég fer oft þegar kvikmyndahátíðir standa yfir en sjaldan þess utan.

La vie en rose
Heima
Veðramót
Hairspray
Embla
Cocaine cowboys
Japan Japan
Iraq in fragments
Metamorphosis
The Bridge
Helvetica
El Ejido
Campillo, sí, quiero
Lives of others
Astrópía
Harry Potter and the order of the Phoenix
Börn
Venus
The last king of Scotland
Little miss sunshine
Stranger than fiction
El laberinto del fauno (Pan's labyrinth)
Babel
Diamantes de sangre (Blood diamonds)
Volver
The Holiday
Köld slóð

3 comments:

Anonymous said...

hvernig í ósköpunum finnur tíma fyrir þetta allt saman. plús það að vera í fullu námi og slatta af vinnu.
held ég hafi farið tvisvar í bíó á síðast ári hihihihi. en fór aftur ámóti held ég fjórum sinnum í leikhús hihihihi
kveðja Heiða skvísí

Ásta Kristín said...

Já... ég á ekki börn og mann sem þurfa tíma og athygli. Það er líka lágmarkstími í húsverk hjá mér, og ég fór bara tvisvar í leikhús á seinasta ári.

Annars gekk mér svo vel á seinustu önn að ég ætla að prófa að taka aðeins meira en fullt nám núna. Svo fara 3 seinnipartar í viku í ræktina. Og tveir morgnar í vinnu. Samt hef ég fullt af hangsitíma, og get boðið góðum gestum upp á kaffi... svo hafðu bara samband ef þú ert kaffiþyrst á milli fyrirlestra.

Anonymous said...

shit hvað þú ert duglegkona....ég þyrfti að fá smá af þessum dugnaði og aga það er alveg á hreinu. verðum eindilega að hittast yfir kaffibolla við tækifæri.
kveðja heiða skvísí