7 January 2008

1-0 fyrir húsráðanda

Fyrsta barátta ársins hefur verið háð. Hún var hatrömm og langvinn og fór fram milli undirritaðrar og klakans í frystihólfinu í ísskápnum. Húsráðandinn í Vesturbænum hafði sigur, með heitt vatn, stóra búrhnífinn og tímann að vopni.

Fyrr um kvöldið hafði ég líka sigrast á mínum innri letipúka og er nú búin að taka niður jólaskrautið og þrífa íbúðina. Mikið verður gott að fara að sofa með góða samvisku og Þrifilm í nösunum.
---
Það gerist samt fleira í mínu lífi en átök innan veggja heimilisins (athugið að ég bý ein og þarf því ekki að slást við fleiri en sjálfa mig). Í gærkvöldi fór ég á brennu á Álftanesi, sem mér fannst samt ekki alveg alvöru því þar voru engir mennskir í álfabúningum og engin nýárslög sungin. Ég fékk samt að leika mér með stjörnuljós, eins og sést hér að neðan. Með góðum vilja er hægt að sjá að ég er að baksa við að skrifa nafnið mitt, afturábak, í roki, á 3 sekúndum því það var lokunarhraðinn.

Á laugardag fór ég ásamt vinum mínum í könnunarleiðangur um Reykjanes, þar sem við nutum góða veðursins. Ég tók engar myndir og því línka ég bara á myndir vina minna, hér og hér.

No comments: