Jamm. Kjaftavaðalstilhneigingin hefur tekið yfirhöndina og ég ætla að reyna að blogga. Og vona að það endist lengur en í þrjá daga. Þessi viðleitni er athygliverð í ljósi þess að ég hef sjaldan verið uppteknari en nú, mig vantar sannarlega ekki nýja tómstundaiðju og verð á komandi misserum sjaldnar í netsambandi en ég hef verið í langan tíma.
Á þessum síðum verður sjaldan samfélagsleg gagnrýni, lítið um slúður en þeim mun meira af málfarsvillum og kjánalegum sögum af Ástu litlu í Stóra heiminum. Það verður bloggað á íslensku eða ensku eftir hentugleikum en þar sem seinust mánuðir hafa að mestu leyti farið fram á ensku er íslenskan nú orðin svolítið ryðguð.
Finally got round to create a weblogaccountthingy. Will write in English and Icelandic to please as many of my friends as possible – and get lots of comments :)
1 comment:
Velkomin í bloggheiminn!
Verður gaman að lesa komandi ævintýri :) hjá þér.
Fylgist spennt með.
kveðja
Linda Björk
Post a Comment