5 December 2004

Ég fékk áskorun frá litla bróður mínum um að blogga á íslensku og ætla að gera eina íslenska færslu. Reyndar vorkenni ég engum að lesa einföldu enskuna mína, ef ég get skrifað hana þá geta flestir sem ég þekki lesið hana. Fyrir enskunni eru tvær ástæður; ég skildi tölvuna eftir í Buenos Aires og mér leiðist að skrifa íslensku á spænsk lyklaborð, sem kallar á að gera shortcut á íslenska stafi, og svo eru margir vina minna bara ekki læsir á íslensku.

Ég las á Moggavefnum að samkvæmt Sameinuðu Þjóðunum þjást rúmlega 170 milljónir barna af næringarskorti og að um 120 milljónir barna ganga aldrei í skóla. Þetta eru skuggalegar tölur. Og hvernig væri að við gerðum eitthvað í málinu? Segjum svo að 5 manns sem lesa þetta taki sig til og gerist styrktarforeldrar barns, t.d. í gegnum SOS barnaþorp (sos.is) eda ABC barnahjálp (abc.is), þá fækkar börnunum sem líða skort ekki bara um 5 heldur verða fjölskyldurnar sem þessi börn gætu eignast í framtíðinni líka betur settar. Og ekkert væl um peningaleysi; það geta margir látið 15-20 þúsund af hendi rakna á ársgrundvelli, við lifum í þvílíkum vellystingum og eyðum nú öðru eins í vitleysu.

Meira af skuggalegri tölfræði; ég las um daginn um rannsókn sem var gerð á vegum Félagsmálaráðuneytis Argentínu (eða sambærilegu batteríi) að 6 af hverjum 10 börnum í Argentínu lifa undir fátæktarmörkum. Hvernig er hægt að byggja framtíð þjóðar á þessum börnum? Það verður erfitt.

2 comments:

Anonymous said...

gaman að lesa um þig, keep up the good eork... her er jólastressið alveg að fara með íslensku vikingana, ég vinn i kringlunni þannig að ég er alveg með það beint í æð.... gangi þer vel og keep up the good work
Birna

Ásta Kristín said...

Takk takk, gaman ad sjá ad einhver fylgist med. Láttu jólin ekki fara med thig :) - ertu alveg flutt heim, í bili alla vega?