10 December 2004

Ég sé að ég verð að breyta þessari síðu, fyrir utan að ég er ekki búin að gera neinar krækjur þá er þessi æpandi framsóknargræni litur langt frá því að vera aðlaðandi. Ég lifði í þeirri blekkingu að þetta væri bara fagurlega grasgrænt, en þetta er alveg innilega framsóknargrænt. Framsóknarflokkurinn er almennt ekki skammaryrði í minni fjölskyldu en er það í mínum orðaforða. Annars ætla ég ekki að fara að tala mikið um pólitík hér, mér finnst ég alla jafna vita of lítið og fylgjast of lítið með til þess. Ég hef nú samt ákveðnar skoðanir í þeim efnum. Kunningi minn náði sér á flug í umræðu um pólitík í haust, hvessti á mig augum og spurði mig hvort ég kysi. Ég var afar róleg á yfirborðinu, passív væri sennilega rétta orðið, en hugsaði með mér "kýs ég?! Hvurslags eiginlega spurning er þetta? Heldurdu að ég sé alger gólftuska?! Ég hef nú barasta aldrei..." o.s.fr. En allavega... ég sé að ég get ekki beðið eftir rigningardegi til að fara í endurbætur á þessari síðu, þá get ég þurft að bíða ansi lengi. En ekki núna... á morgun segir sá lati.

1 comment:

Ásta Kristín said...

Takk fyrir ábendinguna. Mér líkar annars einfaldleikinn á sídunni, letrid o.fl., en ekki liturinn. En ég á nú eftir ad sjá ad ég nenni ad eyda tíma í svoleidis fikt... :)