28 November 2005

Ég rakst á stórskemmtilega lesningu í um helgina, bókina Mannasiðir eftir Jón Jacobson sem var gefin út í Reykjavík árið 1920. Þar er að finna leiðbeiningar um um kurteisi og háttprýði - og hafa gaman af. Hér eru nokkur brot úr þessari ágætu bók;

„Hvernig fara skal með hárið?

Hreinlæti er hér sem víðar fyrir öllu. Þvoið yður rækilega um höfuðið, að minsta kosti vikulega.“
-----
„Hvað er um framgöngu?

...Menn verða að forðast , að vera sem á hjólum, eða líta út sem danskennarar í námsstundum. Sönn prúðmenska hatar bæði tildur og klunnaskap. Þó er - af tvennu illu - betra að vera stirður sem naut, sé það meðfætt, en óeðlilegur api.“
-----
„Hvað eru viðræður (konversation)?

Svo er um oss Íslendinga sem fleiri þjóðir, að oss er tamara að nota orðið „konversation“, sem lánað er úr máli lipurðarinnar, frakkneskri tungu, en íslenzk orð um kurteisar og liprar viðræður eða samtöl manna á milli, í veizlum og í samkvæmum, enda mun mál vort eiga langt í land að ná tökum á þessu efni“...
-----
„Hve lengi skal heimsókn vara?

Ekki lengur en fjórðung stundar, nema menn séu nákunnugir í húsinu. En ekki skal horfið á brott skyndilega, heldur beðið byrjar eða tækifæris, svo sem þegar einhverju umtalsefni er lokið.“
-----
„Hvernig skal til borðs setjast?

Hvorki of nærri né of fjarri. Matþverruna leggi menn á hné sér hálf-útbreidda, en varist að setja hana undir höku sér, eins og sumir gera. Sé einhver sá klaufi, að hann geti ekki að öðrum kosti matazt, án þess að óhreinka sig, er best fyrir hanna ð sitja heima, svo að aðrir þurfi ekki að horfa upp á fullorðna menn sitjandi með slefudúk að barna sið.“
-----
„Má taka hunda með sér inn á opinbera staði?

Auðvitað ekki nema vel vanda og meinlausa rakka, sem hvorki sníkja, gelta eða flaðra upp á fólk. Best er að hafa þá alls ekki með sér, því að ýmsir hafa ógeð á hundum, svo sem tepraðar og taugasjúkar konur.“
-----
„Konur hafa oft ánægju af að skrifa á alla vega skreyttan og litaðan pappír („Fantasipapir“) og er það meinlaust gaman, en óviðkunnanlegt, að karlar séu að slíku glingri.“
-----
„-Notið aldrei augnagler (eingler eða tvígler) að óþörfu. Gleraugu lýta fremur en prýða, nema Glámsglyrnur sé að hylja. Og að rífa slík verkfæri upp úr vasanum, til að glápa á konur á götum, er ósvinna mikil.“

3 comments:

Linda Björk said...

hahahahaha

þetta er geðveikt... sem eflaust prýðir ekki háttvísri dömu að segja ;)

úú fer að styttast í ferðina! Er bara orðin spennt fyrir þína hönd.

Anonymous said...

Maðurinn hlýtur að hafa verið eftirsóttur konverersationisti. Snilld!
Agnes

Þórunn Gréta said...

Dásamlegt!