23 July 2006

Hér er mynd af yndlings blómum sem ég geng alltaf framhjá á leið í vinnuna, þar sem þau fossa út á gangstéttina úr einum garðinum. Veit samt ekkert hvað þau heita.

Í fréttum er þetta helst á á fimmtudaginn held ég austur á bóginn, ekki mjög langt samt, og fer heim í sveitina þar sem ég stefni á að njóta nokkurra daga í faðmi fjölskyldunnar og fara á tónleika með Belle and Sebastian og Emilíönnu Torrini í bræðslunni.

Svo er ég í íbúðarleit, ekki fyrir mig reyndar því ég er alsæl í hreiðrinu mínu í Vesturbænum. Vinur minn er að flytja hingað frá Bandaríkjunum í haust og ég leita nú logandi ljósi að samastað handa manninum, því þó hreiðrið mitt sé notalegt þá er það afar lítið. Stúdíóíbúð eða gott herbergi myndi henta, helst nálægt Háskólanum, endilega látið vita ef þið vitið um svoleiðis sem liggur á lausu.

F1000009

2 comments:

Picciotta said...

er þetta ekki músareyra... :)

Ásta Kristín said...

Nei... en þetta gæti verið Músareyrabróðir. Er stærra en Músareyra, og stilkarnir mýkri, lengri, fölgrænni og loðnari en á Músareyra. Held að þetta sé bara af tegundinni aðfluttus garðablómus.