14 August 2006

Orð óskast

Góðvinur minn var að velta netnotkun- og hegðun fyrir sér og sagði að það hlyti að vera til orð yfir það þegar, í leit að einhverju ákveðnu, þú ferð á hverja síðuna á fætur annarri þar til tenglarnir eru búnir að leiða þig eitthvert allt annað og þú manst varla hvað þú varst að gera í upphafi.

Fyrsta uppástungan mín var sögnin að Hans-og-Grétast, því við fylgjum jú tenglum eins og þau brauðmolum. Og eins og hjá þeim systkinum vill gerast að maður lendi á villigötum.

En svo fannst mér þetta ómögulegt því þau stráðu brauðmolunum sjálf. Brauðmolar hafa kannski verið vírusvarnir þess tíma, til að varna því að maður lendi í ógöngum. Og hvað myndi svosem nafnorðið vera... Hans-og-Grétun?

Að vafra finnst mér hljóma stefnulausara... eins og að ráfa eða rangla. "Höfuðlaus her vafrar um veraldarvefinn."

Einhverjar uppástungur?
-----

Í bestu fréttum er þetta annars helst:

-Ég er loksins búin að finna húsnæði fyrir félaga minn, svo nú getur hann flutt áhyggjulaus til Íslands. Ef honum líkar ekki húsnæðið getur hann barasta étið það sem úti frýs. Ja, allavega þar til hann finnur sér annan samastað.

-Í næstu viku byrja ég í skólanum. Ég ætla nefnilega að taka spænskukúrs í Endurmenntun Háskólans í Reykjavík, svona til að ég forheimskist ekki af að vera bara að vinna og dingla mér. Ég er strax búin að kaupa mér kennslubækurnar (og nokkrar aðrar bækur til) og finnst þetta alveg dandalans spennandi.

-Og í næstu viku (aldeilis bjart framundan hjá minni) fer ég heim í sveitasæluna, þar sem planið er að gera ekki neitt, og sem allra mest af því.

No comments: