26 October 2004

Gaaaa, ég er að falla á tíma. Ég flýg út fyrir allar aldir þann 4. nóvember og ég á eftir að gera skrilljón hluti áður en kemur að því. Ég á enn eftir að kaupa mér ferðatryggingu og samþjöpputakakekkertplásssvefnpoka, láta laga tölvuna, hitta fjölda fólks, tæma íbúðina, gera við bakpokann, fara í klippingu, finna bólusetningarkortin og og og... En þá dugir fátt annað en láta verkin tala.

Ég er samt búin að því erfiðasta - að hringja í bankann. Fyrir mér er það sambærilegt við að fara í bólusetningu; ég dauðkvíði alltaf fyrir, verð auðmjúk og aumingjaleg (enda fólkið með sprautuna/peningana sem er við völdin) og ofboðslega fegin þegar það er yfirstaðið. Þetta tekur alltaf fljótt af og er ekkert svo vont. Eftir u.þ.b. hálfrar mínútu samtal við góða manninn í bankanum var ég komin með yfirdráttarheimild upp á hundraðþúsundkall, að því meðtöldu að ég segði deili á mér. Ég auðvitað vona að ég þurfi ekkert að nota yfirdráttinn en segir mér svo hugur um að ég verði orðin frekar blönk þegar líða tekur á mars. Og einhvern veginn verð ég að komast aftur heim.

2 comments:

Anonymous said...

hae thetta er hulda, er ekki a tolvunni minni thannig ad eg skrifa bara a ensku. Have a great trip. Drop by New York any time you like, there's always couch space for you and who knows I might go to Argentina. Keep in touch.

Hulda
www.simple.is

Ásta Kristín said...

Takk takk, er ekki með neitt plan í huga eftir Argentínu, er að hugsa um Uruguay og Costa Rica, kemur í ljós. Hef samband ef ég á "leið um".