Orð dagsins er tímaskortur. Í dag fór ég á bókasafnið og skilaði fína spænskunámskeiðinu sem ég ætlaði að vera búin að fara í gegnum áður en ég færi út. O jæja, ég verð aldrei verr stödd en þegar ég fór að vinna á Spáni án þess að kunna stakt orð í tungumálinu. Ég komst í gegnum fyrsta daginn með að blikka augunum, brosa og segja “buenos días”. Eftir einn svoleiðis dag var ég afar fljót að læra. Og hafði alltaf post-it miða á borðinu hjá mér svo ég myndi ekki ruglast á cuchara (skeið) og cucaracha (kakkalakki) þegar ég afgreiddi ís. Má bjóða þér kakkalakka með ísnum?
Ég sendi út fjölpóst til hellings af fólki í dag og þykist þar með vera búin að dekka allar kveðjur og jafnvel jólakort líka. Á einu bretti. Allavega þykir mér það að vera á flækingi góð afsökun fyrir að senda fá eða engin jólakort .
Og nú ætla ég að pakka draslinu mínu því ég er að flytja á morgun. Þar sem ég flutti tvisvar í sumar og allar bækurnar mínar eru í geymslu verður þetta afar fljótgert. Sem þýðir að ég get farið og fengið mér svo sem einn öl fyrir svefninn með kommúnuverbúðarsambýlismönnunum mínum. Og svo verðum við að sjálfsögðu fersk við flutningana í fyrramálið.
29 October 2004
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment