10 November 2004

Ég er enn ekki búin að laga linka og fleira hér til hliðar, lærði það seinasta daginn heima en hef ekki tekið tíma í það ennþá.

Buenos Aires er reglulega falleg borg, með tilkomumiklum gömlum byggingum á hverju horni og skemmtilegu götulífi. Í borginni og úthverfum hennar búa um 13 milljónir manna og hér er tangó málið. Tangó og nautakjöt. Sem ég vissi fyrirfram, bara ekki að það væri svona yfir-og-allt-um-kring. Og Diego Maradona, sem er þjóðarhetja þrátt fyrir allt. Það eru myndir af El Diego út um allt, allar samt síðan hann var ungur og stæltur, engar eftir að hann varð gamall og umm... þvældur.

Ég skoðaði í dag hverfi sem heitir La Boca og sá meira að segja heimavöll Boca Juniors (ég, af öllum, að skoða fótboltavöll!). Fór með fleiri ferðalöngum frá Milhouse hostel og tók meira að segja nokkur nett *hóst, hóst* tangóspor við bráðmyndarlegan kavaler á kaffihúsi eftir miklar áskoranir, strákarnir voru hins vegar flestir skræfur og létu ekki tilleiðast.

Og á morgun held ég áfram á spænskunámskeiði, tralala...

2 comments:

Linda Björk said...

Blessuð

Gaman að heyra lýsingarnar :) ertu byrjuð að vinna eða ertu enn bara að túristast?

Ásta Kristín said...

Er nu adallega ad turistast... en hef hjalpad til a farfuglaheimilinu, adallega a barnum!