Nú er ég komin til Bariloche í sunnanverðri Argentínu. Það er eins og ég hafi hvergi farið, það er nýfallinn snjór í fjöllunum og undir glugganum mínum vaxa umfeðmingur og vallhumall. Það er kalt hérna þó komið sé sumar og þar sem daginn er farið að lengja þjóna jólaljósin ekki þeim tilgangi að lýsa nema yfir blánóttina. Jólunum ætla ég að eyða í litlum bæ sem heitir Trevelin og er skammt héðan.
18 December 2004
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment