Ég ætlaði mér að fara í fallhlífarstökk í dag en það er of vindasamt, svo ég bíð í ofvæni við símann eftir kallinu og fer hvað úr hverju að taka upp á þeim fjanda að naga neglurnar af taugatitringi. Ekki vegna þess að það að stökkva út úr flugvél í háloftunum sé svo ógnvænleg tilhugsun, heldur vegna þess að ég VIL VIL VIL prófa fallhlífarstökk og það þarf að gerast í dag eða á morgun því bráðlega held ég áfram ferð minni og ég vil allrahelst skipta við áreiðanlegt kompaní sem er staðsett hér í bæ.
Ég finn fyrir sömu óró og þegar ég ætla mér að fara yfir Vatnsskarð og það er ófært; þá kíki ég á veður&færð síður textavarpsins á 5 mínútna fresti og hringi í Vegagerðina sem segir segir júþaðverðuropnaðréttbráðum-allavegafyrirhádegi-kannskiseinnipartinn- vélarnareruallaruppteknar-þaðerekkihægtaðopnaallaveginaíeinu-sjáumtilþegarlægir-kannskiámorgun. Þá hriktir í alvarlega í stoðum jafnaðargeðsins og þettareddastbrosið skríður skelfingu lostið í holu sína.
Hef ég ákallað hina fornu guði sem stjórna ástandi í himinhvolfinu en þeir virðast þjást af sértækri suðurhvelsheyrnarröskun, sennilega sniðganga þeir yfirgnæfandi kaþólskar álfur þar sem kallinn með hvíta skeggið ræður ríkjum. Og kommon, vindstyrkurinn má ekki fara yfir 15 km/klst, það bærist varla hár á höfði. Í minni heimasveit kallast þetta vindstig blankalogn.
-----
Í dag mun vera bóndadagur, megi húsbændur heimalandsins (sem annað búalið og óbúandi, óalandi og óferjandi) njóta hangikjöts og hrútspunga og þjóðlegs viðgjörnings í óheyrilegu magni. Í upphafi þorra skal ekki magann mæla heldur graðga í sig góðgæti og taka afleiðingunum seinnameir. Gleðilega þorrablótsvertíð.
Súrmunda Sunnan
21 January 2005
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment