3 February 2005

Eftir að hafa varla gert ærlegt handtak síðan í byrjun nóvember, að undanskildum nokkrum tímum hér og þar, var ég loks matvinnungur í dag. Og með heiðarlegri vinnu í þokkabót, sem túlkur. Samt ekki mikið um handtök í dag - en þeim mun meira um handabönd.

Hef ég nú bætt við minn sívaxandi orðaforða í spænsku allskyns skemmtilegum, ef dálítið sértækum, orðum svo sem reykskynjari, brunatrygging, heilbrigðiseftirlit og klósettpappírshaldari. Spennandi, eh? Það skemmtilega við þetta túlkastarf var samt að ég mátti gjarnan koma með tillögur og athugasemdir, var ekki dæmigerður hlutlaus túlkur heldur þátttakandi í umræðunum. Enda klósettpappírshaldarar og staðlar í ferðaþjónustu mínar ær og kýr.

Og nú held ég til Brasilíu með langferðabíl, til Rio de Janiero fyrir Carnaval. Það dugar sko engin rúta fyrir 36 tíma ferð á brasilískum vegum. So danço samba, so danço samba...

4 comments:

Anonymous said...

Hmm.. athyglisvert nota þeir Duni eða Lambi klósettpappírshaldara eða eru þetta spænskar gæðavörur eins og "papiro de la mucho grande gratias"?

Anonymous said...

kveðja

Letimagi

Anonymous said...

Varð hugsað til þín í kvöld þegar ég sá frétt um komandi kjötkveðjuhátíð.
Góða skemmtun.

Kveðja.
Keli

Anonymous said...

Sæl og blessuð Ásta Kristín! Ráfaði "óvart" inná síðuna þína gegnum síðuna hans Magna frænda. Frábært að sjá hvað þú ert að brasa, þetta er næstum eins og að vinna hjá Skúla meistara.....eða kenna í Grunnskóla Borgarfjarðar, ekki satt ;)
-Myndirnar eru ótrúlega flottar!!

Njóttu þín á Carnivali - farðu vel með þig!
Kveðja, Guðný Ólafs á Dalvík - ennþá BARA kennari ;)