Hollráð dagsins: ekki drekka jógúrt í hvíta sófanum þínum, með tölvuna í kjöltunni. Nema ef ske kynni að þú sért enn í náttsloppnum þegar klukkan er langt gengin í 3 á sunnudagseftirmiðdegi, jógurtin gustist á hann - og þú eigir góða þvottavél.
Ég gerði mér ferð alla leið fram að útidyrum til að ná í Fréttablaðið, en það var rennblautt og ólæsilegt vegna regnsins sem finnur sér alltaf leið ofan í póstkassann minn. O jæja. *Geisp*, svei mér þá ég held ég haldi þá bara áfram að lesa um ævintýri Evu Lúnu. Verst hvað þau eru miklu seinlesnari á spænsku en á íslensku.
11 June 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment