11 June 2006

Ó hvílík dýrð að vera í fríi og eyða því heima hjá sér. Síðan ég flutti inn í afdrepið mitt í Vesturbænum hef ég eytt miklum tíma í mínum eigin ágæta félagsskap og líkar það afar vel. Ekki það að ég hafi ekki gaman að því að hitta fólk - en ég eyði bara svo mikilli orku í fólk í vinnunni að mér finnst mikil hvíld í að vera ein. Það er nú einmitt þess vegna sem ég bý ein. Í dag næ ég að bæði byrja og enda daginn seint, internetandi á náttfötunum, sötrandi indælis tyrkneskt eplate sem ég á enn birgðir af síðan í nóvember. Og til að gera lífið enn yndislegra er ég líka frí á morgun. Planið er að gera sem minnst - en ég verð samt að viðurkenna að í dag hef ég verið að lesa mér til um staðina sem mig langar mest að halda til í næstu ferð og ferðir. Og ég sem ætlaði nú að reyna að vera til friðs í smátíma. Það kostar víst ekkert að láta sig dreyma.

Foto_13

No comments: