Ég fór til Frakklands í október í nokkra daga, svo til Osló í nokkra daga (ekki amaleg vinna þetta) og sneri mér síðan að próflestri. Nú eru prófin búin og mín bara að vinna og ekki með nein aukaverkefni í bið, svo að næst á dagskrá er jólaföndur og notalegheit í rólegheitum við kertaljós. Þar sem ég hélt jólin hátíðleg í Jórdaníu í fyrra og í Argentínu árið þar áður finnst mér afar gaman að þvælast milli bókabúða og kaffihúsa og njóta aðventunnar hér heima í ár.
Og nú hef ég svo sannarlega tíma til að taka á móti gestum, svo að kandídatar í svoleiðis eru vinsamlega beðnir að bjóða sig fram.
No comments:
Post a Comment