6 December 2006

Stekkjarstaur kom fyrstur...

Þar sem ég beið í röð við kassann í Melabúðinni í gær þá heyrði ég kostulegt samtal mæðgna sem voru á undan mér í röðinni. Dóttirin var á að giska 4-5 ára gömul og var að segja mömmu sinni frá jólasveinunum, sem sumir hverjir eru jú haldnir hinum undarlegustu blætum. Það er því ekki að undra að sú litla hafi ruglast aðeins, þegar hún útskýrði að Stekkjarstaur sem kæmi fyrstur og væri elstur þeirra bræðra "reyndi að komast inn í fjárhúsin og drekka blóðið úr kindunum"...

Kannski leikarar séu farnir að accessoriz-a íslensku jólasveinabúningana með vampýrutönnum?!

No comments: