11 January 2007

Salamanca - aftur og aftur

Bráðum fer að renna upp vetrarfríið mitt, sem þennan vetur verður mun styttra en áður. Í ár ætla ég til Salamanca á Spáni, til að halda áfram eilífri baráttu minni við spænska málfræði. Með þrjóskunni mun ég sigra fyrir lok! Salamanca er líka yndisleg borg, ég var þar í janúar og febrúar í fyrra og lærði spænsku af baki brotnu og náði talsverðum framförum.

Flýg út 4. feb og kem heim einhvern tíma í byrjun mars.

untitled

5 comments:

Anonymous said...

Þetta er snilld, þú ert alltaf á leiðinni út um leið og ég kem heim :)
Góða skemmtun á spáni..
Kv.Birna

Ásta Kristín said...

Já, við erum mjög flinkar að stilla þessu alltaf svona upp. En ég verð nú bara mánuð í burtu, verðum bara í sambandi eftir það og sjáum hvort þú verður enn á klakanum.

Anonymous said...

jæja frúin góð, nú er kominn 4. feb og þú komin til Spánar...eða í vélinni...eða á flugvelli hmmm...too many options.
Njóttu hverrar mínútu og talaðu frá þér allt vit á hinni fögru tungu. Daðraðu við nautabana, spjallaðu við gamlar tannlausar konur í rósóttum kjólum og knúsaðu latneska elskhuga.
Hlakka til næsta "hittings" í mars.

Anonymous said...

hæhæ... gaman að sjá að þú ert alltaf að ferðast og gangi þér vel með málfræðina :)
svo bíð ég bara eftir næsta bloggi :p
en endilega að kíkja á mína síðu www.123.is/freyja :)

Anonymous said...

hvernig er það á ekkert að skrifa um lífið í Salamanca?