Ég hef fengið athugasemdir vegna bloggleysis og hyggst nú gera eitthvað í því máli. Mér þykja svo hrikalega leiðinleg blogg sem snúast upp í sparðatíning úr daglega lífinu, nema viðkomandi sé þeim mun betri penni, að ég hef reynt að forðast það – og enda uppi með síðu með er tæplega með lífsmörkum. Ekki það að ég hafi frá miklu að segja núna, en ég get allavega reynt.
Ég er sem sagt út á Spáni, í hinni undursamlegu borg Salamanca, þar sem ég er í málaskóla. Enn er ég að berjast við að fylla í eyðurnar í málfræðikunnáttu minni. Við spænska eigum okkur langa og hamingjusamlega sögu, en betur má ef duga skal. Ég lærði nefnilega spænska málfræði löngu eftir að ég byrjaði að tala málið, og talaði þess vegna bara vitlaust. Það er ekki gott fyrir svona ferkantað fólk eins og mig, sem vill ekki gera hlutina nema gera þá rétt, og ég er einmitt að vinna í því að rétta af vitleysurnar mínar.
Fyrir þá sem ekki vita þá er Salamanca norðvestur af Madrid, og ef þið haldið ég liggi bara í sólbaði milli þess sem ég sæki tíma þá mun ég hér með upplýsa ykkur um að Salamanca er uppi á hásléttu inni í miðju landi. Ég kem ekki til með að vera sólbrún þegar ég kem heim þar sem hér fer hitinn upp í ca. 13 stig yfir hádaginn. Fyrstu viðbrögðin sem ég fékk þegar ég sagðist vera fara til Spánar einkenndust af vankunnáttu um þetta ágæta land, hér er nefnilega margt fleira til en sól og sangría. Vissulega ná margir Íslendingar sér í brúnku á Spáni á veturna, en þá fara þeir til Kanaríeyja sem notabene eru úti fyrir ströndum Afríku.
En meira um Salamanca. Þessi ágæta borg, sem ég þreytist ekki á að mæra, er háskólaborg og hefur verið svo um langa tíð. Háskólinn (þeir eru nú reyndar fleiri en einn núna) var stofnaður 1218 og hér hafa margir stoppað við. M.a. dvaldi Kristófer Kólumbus hérna og blaðaði í kortum áður en hann lagði í’ann. Hér búa um 180.000 manns og auk þess eru hérna að jafnaði um 40.000 nemendur. Borgin er því ekki stór og jafnan kemst maður allra sinna ferða fótgangandi því hún er líka þétt byggð. Svo er þetta líka frábær staður til að læra spænsku því hér á hásléttunni í Kastilíu og León er talaður svo fallegur framburður og héðan kemur hin upprunalega spænska (já, ég er farin að snobba fyrir ákveðnum framburði. Plebbahátturinn drýpur af mér).
Æi, nú nenni ég ekki að skrifa meira. Ég nota það bara sem afsökun fyrir að skipta því sem ég hef að segja í tvo hluta og ná þannig að kreista tvær færslur út úr því sem ég er að dunda mér við þessa dagana.
Myndirnar eru af Plaza Mayor, aðaltorgi Salamanca. Frábært hvort sem er að degi eða nóttu.

No comments:
Post a Comment